Band (215 mm x 175 mm x 20 mm) er frá 1973.
Kápuspjöld eru klædd fínofnum striga. Leður er á hornum og kili. Saumað á móttök.
Handritið er í bandi með þremur öðrum brotum Þorláks sögu: AM 383 II-IV 4to.
Handritið er skrifað á Íslandi og það er tímasett til ca 1250 (sjá ONPRegistre , bls. 452), en til 13. aldar í Katalog I , bls. 596.
Árni Magnússon fékk blöðin árið 1704 frá Jóni Gíslasyni aðstoðarkennara á Hólum (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. júní 1984.
VH skráði handritið 19. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1. apríl 1887. Katalog I>
Viðgert og bundið 1973.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.