Manuscript Detail
AM 380 4to
There are currently no images available for this manuscript.
Hungurvaka og Þorkláks saga helga; Iceland, 1600-1699
Contents
Hungurvaka
“Hungurvaka”
“Bækling þennan kalla ég Hungurvöku …”
“… og þolinmæði bæði við óhlýðna menn og rangláta.”
Þorláks saga helga
“Hér hefur sögu af hinum heilaga Þorláki biskupi”
“Í þann tíma er stýrði Guðs kristni Innocentius páfi … ”
“… lofandi Guð og hinn heilaga Þorlák biskup.”
Physical Description
- Blaðmerkt með blýanti 1-87.
- Blöð eru víða blettótt og skítug (sjá t.d. 1r og 15r).
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 160 mm x 125-130 mm.
- Línufjöldi er ca 27-28.
- “W”W á spássíu blaðs 12v til marks um vísu í textanum.
- Ónúmeruð kaflaskipting er í Þorláks sögu helga.
- Með hendi Jóns Pálssonar.
- Blendingsskrift.
- Spássíuskrif á stöku stað. Á spássíu blaðs 9r stendur t.d. “Sigurður Jórsalafari.” Á blaði 14 er “ellefta” leiðrétt á spássíu í “tólfta” svo dæmi séu tekin.
Band (193 mm x 178 mm x 25 mm) frá 1979.
Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari dúkur á hornum og kili. Saumað á móttök.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli sem skrifað er á að innanverðu (þ.e. predikun á latínu).
- Seðill (176 mm x 144 mm) með hendi Árna Magnússonar: “Þessar: Þorlaks saga og Hungrvaka eru teknar ur bok sem eg feck af Jone Einarssyne ä Hölum, og vered hefdu eign Hr Þorlaks Skulasonar 1621. Sidann hafde Gudbrandur Þorlaksson giefed hana Jone (nockrum) Jonssyne. Jon Jonsson fieck Sr Þorsteine Jonsson (ä Eydum) bokena 1662. Enn Sr Þorsteinn Jonsson gafa hana kristrunu dottur sinne 1678, ä Lydum. Confererat cum mea recenti membrana 4to. sem og hafa vered eign H Þorlaks.”
History
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 594. Sögurnar voru áður í sömu bók og AM 404 4to, AM 446 4to og AM 458 4to.
Neðst á seðli segist Árni Magnússon hafa borið þetta handrit saman við skinnhandrit sem var í eigu Þorláks Skúlasonar biskups.
Árni Magnússon fékk sögurnar úr bók frá Jóni Einarssyni á Hólum en hún hafði verið í eigu Þorláks Skúlasonar biskups 1641. Guðbrandur Þorláksson gaf svo bókina Jóni Jónssyni. Hann fékk hana síðan séra Þorsteini Jónssyni á Eiðum árið 1662. Séra Þorsteinn gaf hana dóttur sinni Kristrúnu 1678 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. febrúar 1987.
Additional
VH skráði handritið 19. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010, GI skráði 6. nóvember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886.Katalog I>bls. 594 (nr. 1132).
Viðgert og bundið í maí til september 1979. Eldra band fylgir ekki.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Myndir af gamla bandinu eru í kassa á Stofnun Árna Magnússonar ásamt fleiri myndum frá Kaupmannahöfn af gömlu bandi.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||









