Tíu kver.
Skrifari er óþekktur; textaskrift.
Band frá 1974 (196 null x 166 null x 59 null). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Horn og kjölur klædd skinni, saumað á móttök.
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett 1350-1375 (sjá ONPRegistre , bls. 446), en til 14. aldar í Katalog I , bls. 437.
Til Árna Magnússonar kom handritið smám saman frá Gísla Sigurðssyni og skólapiltum, en þeir rifu það í sundur og notuðu blöðin utan um kver. Fósturfaðir Gísla, Ólafur Árnason á Höfðaströnd í Jökulfjörðum, hafði gefið honum handritið. Af spássíugreinum má ráða að áður áttu það feðginin Tómas Arason (42v) og síðar dóttir hans Soffía Tómasdóttir (63r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1974. Eldra band fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.