Manuscript Detail
AM 156 4to
View ImagesJónsbók; Iceland, 1350-1375
LATIN SMALL LETTER O WITH CURLSpecial character shown similar to its original form.
Contents
Jónsbók
“[F]riður í blessan oss …”
“… en verða þó til fullra aura.”
Handritið er óheilt.
Physical Description
- Blaðmerkt er með dökku bleki, 1-79.
Tíu kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn
- Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33-39, 3 tvinn + 1 stakt blað.
- Kver VI: blöð 40-47, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 48-53, 3 tvinn.
- Kver VIII: blöð 54-61, 4 tvinn.
- Kver XIX: blöð 62-69, 4 tvinn.
- Kver X: blöð 70-79, 4 tvinn + 2 stök blöð.
- Handritið var hlutað í sundur og er illa farið. Hér og þar hefur skriftin verið skýrð upp (sjá t.d. 8v og 10r).
- Eitt blað vantar á milli blaðs 39 og 40.
- Blað 33 er tekið að losna úr bandinu.
- Blöð eru dökk og skítug (sbr. blað 1).
- Fyrirsagnir í rauðum lit eru yfirleitt afmáðar (sbr. t.d. 36r og 40r).
- Göt eru á blöðum 1, 24, 36, 48, 49, 53, 59, 63, 64, 65, 66 og 68. Misjafnt er hve mikið textinn skerðist. Gatið á blaði 1 er stórt en lítið á blaði 64.
- Morknað hefur úr jöðrum blaða og sums staðar hafa horn þeirra morknað eða brotnað af (sjá t.d. blöð 23, 34, 79).
- Eindálka.
- Leturflötur er ca130-135 mm x 95-100 mm.
- Línufjöldi er ca 24-25.
Skrifari er óþekktur; textaskrift.
- Spássíugreinar af ýmsu tagi (sjá t.d. 17v-18r).
Band frá 1974 (196 mm x 166 mm x 59 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Horn og kjölur klædd skinni, saumað á móttök.
- Tveir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar, að mestu samhljóða.
- Seðill 1 (156 mm x 118 mm): “[efst á seðlinum:] þetta er ur logbokar fragmento, sem ätt hefur Olafur Arnason ä Hofdastrond, og gaf Gisla Sigurdsyne, enn hann ymsum skölapilltum. [neðst á seðlinum:] Gisle hefr lofad mier meiru her ur. hann gaf mier sidan resten, og [yfirstrikað: er þad þetta innsaumada] hefi eg nu bokinn nærri Complet.”
- Seðill 2 (82 mm x 148 mm): “37. Jonsbok 4to. gott exemplar. hefur nylega verjd eign Olafs Arnasonar ä Hofdastrond i Jokulfiordunum. hann gaf hana Gisla Sigurdzsyne, fostursyne sinum, til ad rïfa i sundur utan um kveri, Gisli giorde og so, og gaf ymsum skolapilltum. Eg safnade ollum blodum hia skolapilltum, og þad örifna af bokinne (dimidiam circeter partem) feck eg hia Gisla og er nu so bokin nærri heil ä ny.”
- Miði með upplýsingum um forvörslu handrits.
History
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett 1350-1375 (sjá ONPRegistre, bls. 446), en til 14. aldar í Katalog I, bls. 437.
Til Árna Magnússonar er handritið smám saman komið frá Gísla Sigurðssyni og skólapiltum, en þeir rifu það í sundur og notuðu blöðin utan um kver. Áður hafði fósturfaðir Gísla, Ólafur Árnason á Höfðaströnd í Jökulfjörðum, gefið honum handritið.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1974.
Additional
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1974. Eldra band fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| ONPRegistre | |||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||