Manuscript Detail
AM 249 g fol.
There are currently no images available for this manuscript.
Rímtal (íslenskt); Iceland, 1550-1599
Contents
Um uppruna júlíanska tímatalsins
“Hver fyrst hefur uppá rím fundið á Norðurlöndum”
“Rím var fyrst í Norðurlöndum til sett og uppáfundið af Júlío þeim fyrsta rómverska keisara …”
“… vors frelsara Jesú Kristí 47 ár. Teste Carione.”
Athugagrein um afhendingu grallara
Samkvæmt athugagreininni, sem dagsett er að Vindási 1680, afhenti Snæbjörn Einarsson kirkjunni á Reynivöllum í Kjós þennan grallara. Síðar hefur verið krassað yfir þetta.
Sálmur
“Heilagur, heilagur, heilagur ertu, drottinn Guð allsherjar …”
Tafla til að reikna út flóð og fjöru
Með viðbættum skýringum.
Rímtal (íslenskt)
Með viðbættum annálsgreinum og sagnfræðilegum athugasemdum. Aftasta athugasemdin (bl. 7v): “Anno 1630, 28. decemb: andaðist virðuglegur herra H. Oddur Einarsson, þá hann hafði biskup verið 42 ár. Vitur maður og vellærður.”.
Reglur um útreikninga á árinu
“[Á] hinni gömlu öld er kölluð er páskaöld …”
“… og þetta bregst þér ekki um aldur og ævi.”
Um útreikninga á sunnudagsbókstaf, gyllinitali, páskum o.s.frv.
Þar fyrir neðan er talbyrðingur.
Physical Description
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki.
Krassað yfir athugagrein á bl. 1r.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 175-200 mm x 140-145 mm.
- Línufjöldi er ca 30-34.
- Eyða fyrir upphafsstaf á bl. 8r.
Óþekktur skrifari, textaskrift.
Hringlaga, litskreyttar teikningar á bl. 9r-v.
Litaður og flúraður upphafsstafur (R) á bl. 1r.
Víða notað rautt blek og sums staðar grænt og fjólublátt.
Nótur við sálm á bl. 1r.
Band líklega frá 19. öld (270 mm x 183 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd pappír með ljósu marmaramynstri, skinn á kili og hornum. Blár safnmarksmiði á kili.
Fastur seðill fremst (130 mm x 109 mm) með hendi Árna Magnússonar: “þetta Calendarium var framan vid grallarann fra Sr Torfa ä Vindäse, seiger hann (1710 ultimo Martii) ad eg alldri þurfti þvi aptur ad skila, þvi Grallarenn sialfur sie og onytur”
History
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til síðari hluta 16. aldar í Katalog I, bls. 228. Rímtalið er hugsanlega skrifað af eða fyrir Árna Gíslason, son Gísla Jónssonar biskups, en hann hefur skrifað athugasemd með nafni sínu við 20. júlí 1585 í rímtalinu. Rímtalið stóð áður framan við grallara.
Árni Magnússon fékk rímtalið frá séra Torfa á Vindási og í mars 1710 sagði Torfi að hann þyrfti ekki að skila því aftur því grallarinn væri ónýtur (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. júlí 1978.
Additional
- ÞS skráði 12.-19. janúar 2009.
- DKÞfærði inn grunnupplýsingar 8. mars 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 15. mars 1886(sjá Katalog I 1889:228-229 (nr. 396).
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund |









