Manuscript Detail
AM 227 fol.
There are currently no images available for this manuscript.
Stjórn; Iceland, 1340-1360
Contents
Stjórn
“Þessa bók lét snara Hákon kóngur hinn kórónaði úr latínu er heitir heilagra manna blómstur. Prologus.”
“Sá er háttur og vani keisaralegs valds …”
“… og þú reifst klæði þín með sorg …”
Handritið er óheilt.
Ljósprentað í Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi XX 1956.
Physical Description
- Blaðmerkt síðar af Kålundmeð rauðu bleki, 1-129 (brot af bl. 81 fyrir mistök merkt með tölunni 82).
- Dálkar hafa verið tölusettir síðar 1-582.
19 kver (sjá um glötuð blöð úr kverum í ástandslýsingu).
- Kver I: bl. 1–7, 3 tvinn og stakt blað. Staka blaðið (bl. 7) hefur áður verið hluti af tvinni en fremra blaðið líklega verið autt saurblað fremst (mjó ræma af því er sýnileg við kjöl).
- Kver II: bl. 8-11, 2 tvinn.
- Kver III: bl. 12-19, 4 tvinn.
- Kver IV: bl. 20-27, 4 tvinn.
- Kver V: bl. 28-35, 4 tvinn.
- Kver VI: bl. 36-43, 4 tvinn.
- Kver VII: bl. 44-51, 4 tvinn.
- Kver VIII: bl. 52-59, 4 tvinn.
- Kver IX: bl. 60-65, 3 tvinn.
- Kver X: bl. 66-70, 2 tvinn og stakt blað.
- Kver XI: bl. 71-78, 4 tvinn.
- Kver XII: bl. 79-84, 1 tvinn og 3 stök blöð.
- Kver XIII: bl. 85-92, 4 tvinn.
- Kver XIV: bl. 93-100, 4 tvinn.
- Kver XV: bl. 101-106, 3 tvinn.
- Kver XVI: bl. 107-114, 4 tvinn.
- Kver XVII: bl. 115-122, 4 tvinn.
- Kver XVIII: bl. 123-128, 3 tvinn.
- Kver XIX: bl. 129, stakt blað.
Vantar mjög víða heil blöð eða hluta af blöðum:
- tvö á eftir bl. 8
- tvö á eftir bl. 10
- eitt á eftir bl. 59
- tvö á eftir bl. 62
- eitt á eftir bl. 67
- ofan af bl. 80 og tvö blöð þar á eftir
- mestan hluta af bl. 81 (aðeins varðveitt tvö brot af neðra helmingi)
- eitt á milli bl. 81 og 83
- ofan af og af ytra dálki bl. 83
- tvö blöð á eftir bl. 103
- eitt á eftir bl. 123
- þrjú á eftir bl. 128
- tvö aftan af handritinu á eftir bl. 129.
- Tvídálka.
- Leturflötur er ca 273-275 mm x 195 mm (ytri dálkur: 273-275 mm x 87-90 mm; innri dálkur: 273-275 mm x 87-90 mm).
- Línufjöldi er 44.
- Strikað fyrir dálkum víða og einnig línum sums staðar.
- Stórir skreyttir og litaðir stafir víða dregnir út úr leturfleti.
- Síðutitlar, einkum í síðari hluta handritsins: “Genesis” á bl. 27v-28r, 30v-31r, 32v-33r, 40v-41r, 27v-28r, 52v-53r; “Exodus” á bl. 64v-65r, 69v-70r; “Liber Josua” á bl. 72v-77r; “Liber Juditum” á bl. 77v-86r; “Liber Ruth” á bl. 86v-88r; “Regum” á bl. 88v-129v.
- Kaflafyrirsagnir með rómverskum tölum á spássíum.
- Bendill á bl. 89v.
Hönd A: blöð 1-59rb og 90rb-129 (utan nokkurra stuttra pósta). Óþekktur skrifari, árléttiskrift undir nokkrum áhrifum frá textaskrift.
Hönd B: blöð 59va-90ra og stutta pósta á bl. 14va 14-25, 32rb 25-28 og 126vb 31-37. Óþekktur skrifari, árléttiskrift undir nokkrum áhrifum frá textaskrift.
Litaðir upphafsstafir, myndskreyttir á bl. 1v, 14v, 23v, 33v, 38r, 46r, 71v, 83v, 96r (yngri) og 115r; þar af allmargir sögustafir með myndum sem tengjast textanum, sumar myndirnar þekja alla ytri spássíu og stundum efri og neðri spássíu að auki.
Litaðir stórir upphafsstafir allvíða.
Teikning á bl. 1r, undir ytri dálki sem hefur upprunalega verið auður.
Rauðritaðar fyrirsagnir. Sjá nánar um skreytingar í handritinu: Selma Jónsdóttir, Lýsingar í Stjórnarhandriti, 1971.
Víða eru tilvísanir og þess háttar á spássíum, að hluta til á latínu: 5v, 6r, 13v, 31v, 36r, 38v, 61v, 66r-v, 88v.
Band frá biskupstíð Þórðar Þorlákssonar 1674-1697 (375 mm x 278 mm x 63 mm). Pappaspjöld klædd skinni með meitlaðri skreytingu á kápu og kili, tvær spennslur. Blár safnmarksmiði á kili. Saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju.
Seðill (við bl. 129 og varðar það blað) með hendi Árna Magnússonar.
History
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til c1350 (sjá ONPRegistre, bls. 435), en til 14. aldar í Katalog I, bls. 183.
Var meðal handrita sem Árna Magnússyni bárust frá Íslandi árið 1699 (sbr. AM 435 a 4to, bl. 186r). Var fyrrum í eigu Skálholtskirkju (sbr. AM 435 a 4to, bl. 6v). Bl. 129 var áður utan um Bárðar sögu Snæfellsáss sem sr. Torfi Jónsson í Bæ skrifaði 1644 og var í eigu Ole Worm, en Árni fékk (ásamt með blaðinu) frá Christen Worm árið 1706 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. júní 1997.
Additional
- ÞS skráði 21. janúar 2009 og síðar.
- DKÞ færði inn grunnupplýsingar 2. júlí 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar líklega árið 1885 (sjá Katalog I 1889:183-184 (nr. 347).
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Ljósprentað í Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi XX 1956.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi XX 1956 | |||
| Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre | ed. Den arnamagnæanske kommision | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi XX 1956 | |||
| Gripla | 15: p. 7-42 | ||
| Sýnisbók íslenskrar skriftar | p. 52-53 |