„Þáttur af Brandkrossa og um uppruna Droplaugarsona.“
„Þar hefjum vér upp Helganna sögu er Ketill þrymur er það vér vitum hann kynsælastan verið hafa …“
„… móðir þeirra Gríms og Helga Droplaugarsona.“
„Sagan af Helga og Grími Droplaugarsonum.“
„Ketill hét maður er kallaður var þrymur …“
„… Vetri síðar en Þangbrandur prestur kom til Íslands féll Helgi Droplaugarson.“
Í lok næstsíðustu setningar sögunnar eru sex punktar, hugsanlega til marks um orð sem vantar í textann.
Þrjú kver.
Pappaband frá 1772-1780 (318 mm x 208 mm x 6 mm).
Safnmark og sögutitlar á fremra spjaldblaði.
Leifar af bláum safnmarksmiða á kili.
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 135, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b 4to, bl. 6v-7r, og seðil í t.d. AM 149 fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 31. október 1974.
VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 9. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010, DKÞ grunnskráði 1. nóvember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1885 í Katalog I; bls. 135 (nr. 233).
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.