Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 164 e γ fol.

Orms þáttur Stórólfssonar ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4v)
Orms þáttur Stórólfssonar
Titill í handriti

Þáttur Orms Stórólfssonar

Upphaf

Ketill hængur hét maður sonur Þorkels Naumdæla …

Niðurlag

… og þótti æ hinn mesti maður og varð ellidauður og hélt vel trú sína.

Baktitill

Og lýkur þar söguþætti þessum frá Ormi Stórólfssyni.

Athugasemd

Handritið í heild hefur verið borið saman við handritið AM 160 fol. sem skrifað er af Jóni Erlendssyni (sbr. athugasemd Árna Magnússonar á blaði 1r og seðil). Hér eru titill þáttar, upphaf og baktitill þáttarins út frá lesbrigðum úr samanburðarhandriti:

  • Titill þáttar: Söguþáttur af Ormi Stórólfssyni.
  • Upphaf þáttar: Hængur hét maður son Ketils Naumdæla.
  • Baktitill þáttar: Og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Hjörtur sem stendur á fótstalli, ásamt blómi // Ekkert mótmerki (2, 4).

Blaðfjöldi
4 blöð (318 mm x 202 mm). Neðri hluti blaðs 4v er auður.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 103-110.
  • Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki (fyrir miðju blaði) 1-4.

Kveraskipan

4 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (tvö blöð)
  • II: bl. 1-2 (1 tvinn: 1+2)
  • III: bl. 3-4 (1 tvinn: 3+4)
  • IV: spjaldblað (eitt blað)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 240 mm x 155 mm.
  • Línufjöldi er ca 40-45.
  • Síðutitlar (sjá t.d. blöð 2v-3r).
  • Griporð (sjá t.d. blað 3r).
  • Kaflaskipting: i-x (kafli i er ónúmeraður (sjá t.d. blöð 1r og 4v)).
  • "V" á spássíu er tilvísun í vísur í textanum (sjá t.d. blað 2v).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur.
  • Kansellískrift.

Skreytingar

  • Titill sögunnar og fyrsta lína textans eru með stærra letri en meginmálið og stafir blekfylltir (sjá blað 1r).

  • Griporð eru afmörkuð af fínlegu hringlaga pennaflúri (sjá t.d. 2v-3r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Pappaband (320 mm x 207 mm x 4 mm) frá ca 1772-1780.

Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

  • Seðill (49 mm x 179 mm) með hendi Árna Magnússonar: Þáttur af Ormi Stórólfssyni úr bók í grænu bandi er ég fékk af séra Jóni Torfasyni á Breiðabólstað Confereraður við hönd séra Jóns Erlendssonar í Villingahollti.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 134.

Það var áður hluti af stærri bók í grænu bandi (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 15 fol., AM 144 fol. og AM 188 fol. (sbr. Jónas Kristjánsson 1966, xviii).
Ferill

Árni Magnússon fékk bókina sem blöðin voru tekin úr frá sr. Jóni Torfasyni á Breiðabólsstað (sbr. seðil).

Árið 1730 var handritið hluti af No. 164 in fol. (sbr. AM 456 fol., 5r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. október 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

BS bætti við upplýsingar um feril og uppruna 7. maí 2024.

EM uppfærði kveraskipan 20. júní 2023.

ÞÓS skráði 24. júní 2020.

VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 9. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010,

DKÞ grunnskráði 31. október 2001.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar í  23. desember 1885 Katalog I; bls. 134134 (nr. 228).

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Rit Handritastofnunar Íslands, Svarfdæla saga
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn