„Saga af Eigli Skallagrímssyni sem bjó á Borg í Borgarfirði.“
„Á dögum Hálfdanar kóngs hins svarta voru xii kóngar í Noregi …“
„… ei höfum vér meira af honum að segja en hér er skrifað.“
Og ljúkum vér svo þessari sögu af Eigli Skallagrímssyni. Finis.
Niðurlag sögunnar er síðari viðbót; við skiptingu handritsins hefur blaðið sem texti niðurlagsins var á fylgt með upphafshluta næstu sögu (sjá: Uppruni, Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir ( 5-10 , 13-14 , 21 , 25 , 29-31 , 33 , 34 , 35-36 , 41 , 44-45 , 50 , 52-54 , 59-61 ) // Mótmerki: Fangamark DM ( 1-4 , 11-12 , 15-16 , 17? , 18 , 19-20? , 26? , 27-28 , 32 , 37-38 , 40 , 42-43 , 46-49 , 51 , 55-58 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam með fangamarki AJ // Ekkert mótmerki ( 22-24 ).
10 kver:
Pappaband (336 mm x 216 mm x 17 mm) frá árunum 1772-1780 .
Strigi er á kili. Framan á kápu eru titill og safnmark skráð. Ljós safnmarksmiði er á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 132. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 163 o fol. og AM 163 p fol.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. febrúar 1975.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.