Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 161 fol.

Sögubók ; Ísland, 1625-1672

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-37v)
Svarfdæla saga
Titill í handriti

Svarfdæla saga

Upphaf

[Þ]að er upphaf að þessari sögu …

Niðurlag

… Margar eru sögur af Valla-Ljóti og var hann hinn mesti höfðingi. Ljótur lét drepa Eyglu-Halla bróður Karls unga.

Baktitill

Nú lýkur hér Svarfdæla sögu með þvílíku efni.

Athugasemd

Auð blöð sem tákna eyður í forriti handrits: blað 10v er að mestu autt, blöð 11r-14v eru auð (þeim hefur verið bætt við síðar). Í textanum koma einnig fyrir minni eyður (sjá t.d. á blöðum 9v og 32r).

Blað 38 er autt.

2 (39r-50v)
Valla-Ljóts saga
Titill í handriti

Saga af viðskiptum þeirra Svarfdæla og Guðmundar hins ríka. 1. kapituli.

Upphaf

Sigmundur hér maður. Hann var son Ketils hins rauða …

Niðurlag

… Og lýkur þar viðskiptum þeirra Guðmundar hins ríka, en Guðmundur hélt virðingu sinni allt til dauðadags. Og lýkur þar þessari sögu.

3 (51r-88r)
Reykdæla saga
Titill í handriti

Saga af Vermundi og Víga-Skúta.

Upphaf

Þorsteinn höfði hét maður. Hann bjó á Hörðalandi …

Niðurlag

… Illuga og Birni að fara til Ölvis hins …

Athugasemd

Vantar aftan af sögunni.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Akkeri // Ekkert mótmerki ( 1-3, 4, 10, 16-17, 19, 22-23, 27-29, 31, 33-34, 37, 86, 88 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki 1, klofinn skjöldur, tvö sverð í kross, bjálkar og krans, kóróna efst // Ekkert mótmerki ( 12 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Bær með þremur turnum og fangamarki HB // Ekkert mótmerki ( 39-40, 47, 54, 56, 58-60, 62-63, 66, 69-71, 75, 77-79, 83, 85 ).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Kanna // Ekkert mótmerki ( 42, 44, 48 ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Skjaldarmerki 2, klofinn skjöldur með bjálkum og trjám, Hermes kross og fangamark HS. // Ekkert mótmerki (á saurblaði aftast í handriti).

Blaðfjöldi
i + 90 (þar með talið blað 1 bis (r-v)) + i blað (295 mm x 197 mm). Blöð 10v og 50v eru auð að mestu og neðsti hluti blaðs 88r er auður. Blöð 11r-14v, 38 og 88v-89v eru auð.
Tölusetning blaða

  • Blaðsíðumerking 1-175.
  • Blaðmerking 1-89.
  • Mótar fyrir blaðsíðumerkingu sem hefur verið máð út (sbr. á blaði 28r og víðar).
  • Á spássíur nokkurra blaða hafa áður verið límdir strimlar með númerum sem á vantar í blaðsíðutal (sbr. t.d. blað 40v).

Kveraskipan

14 kver:

  • I: spjaldblað - fremra saurblað (eitt tvinn)
  • II: bl. 1bis-10 (eitt blað + 5 tvinn: 1bis, 1+8, 2+7, 3+6, 4+5, 9+10)
  • III: bl. 11-14 (4 blöð)
  • IV: bl. 15-22 (4 tvinn: 15+22, 16+21, 17+20, 18+19)
  • V: bl. 23-30 (4 tvinn: 23+30, 24+29, 25+28, 26+27)
  • VI: bl. 31-38 (4 tvinn: 31+38, 32+37, 33+36, 34+35)
  • VII: bl. 39-46 (4 tvinn: 39+46, 40+45, 41+44, 42+43)
  • VIII: bl. 47-50 (2 tvinn: 47+50, 48+49)
  • IX: bl. 51-60 (5 tvinn: 51+60, 52+59, 53+58, 54+57, 55+56)
  • X: bl. 61-66 (3 tvinn: 61+66, 62+65, 63+64)
  • XI: bl. 67-76 (5 tvinn: 67+76, 68+75, 69+74, 70+73, 71+72)
  • XII: bl. 77-84 (4 tvinn: 77+84, 78+83, 79+82, 80+81)
  • XIII: bl. 85-90 (3 tvinn: 85+90, 86+89, 87+88)
  • XIV: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 240 mm x 140 mm.
  • Afmörkun leturflatar með þurroddi (sbr. t.d. blöð 42r, 43r og 51r).
  • Línufjöldi er ca 26-30.
  • Síðutitill á blöðum 1r-37v: Svarfdæla.
  • Eyður fyrir upphafsstafi eru á stöku stað (sbr. t.d. 1r, 52r). (Upphafsstafur á blaði 51r virðist ófullgerður).
  • Sögur eru kaflaskiptar; víða vantar kaflanúmer en gert er ráð fyrir þeim með auðri línu fyrir ofan texta eftirfarandi kafla.
  • Svarfdæla og Valla-Ljóts saga enda í totu.

Ástand

  • Blettir eru víða (sbr. t.d. á blöðum 51r og 56r).

Skrifarar og skrift

Skreytingar

  • Blekdreginn skrautstafur í upphafi Valla-Ljóts sögu á blaði 39r.
  • Aðrir blekdregnir upphafsstafir (1-2 línur) eru stærri en meginmál.

  • Fyrirsagnir og kaflanúmer eru með blekdregnum skrautstöfum (sbr. blöð 1r, 39r og 51r).
  • Fyrirsagnir og fyrsta lína efnisgreinar skrifuð í stærra letri og stundum með upphafsstöfum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Efnisyfirlit með yngri hendi á blaði 1bisr (merkt 1a).
  • Blöð 11r-14v eru auð innskotsblöð, e.t.v. bætt við fyrir Árna Magnússon.
  • Kaflafyrirsagnir í Svarfdæla sögu eru með yngri hendi (sbr. blöð 1r-37v).
  • Spássíugreinar og leiðréttingar hér og þar, að hluta til með yngri hendi (sbr. t.d. blöð 39r, 47r og 66r).
  • Á neðri spássíu á bl. 10v, með yngri hendi: Her hafa verið 2 blöð óskrifuð í fyrstu, en 2 er síðan bætt við.

Band

Band frá 1976 (305 mm x 225 mm x 25 mm). Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Handritið liggur með eldra bandi í blárri öskju.

Eldra band frá 1700-1730. Spjöld og kjölur klædd bókfelli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er talið skrifað á Íslandi og er tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 114, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1625-1672.

Jónas Kristjánsson telur öll önnur pappírshandrit Svarfdælu eiga rætur að rekja til þessa (sbr. Íslenzk fornrit IX, bls. xcii).

Það hefur líklega verið hluti af stærri bók, e.t.v. þeirri sömu og innihélt AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 a fol., AM 169 b fol. og AM 169 d fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.

Ferill

Bókina sem handritið tilheyrði líklega fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni.

Áður hefur handritið tilheyrt Brynjólfi Sveinssyni. Það er ekki vitað hvernig það kom í hendur Jóni Þorlákssyni. (Valla-Ljót saga (STUAGNL 63), bls. viii-ix).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. mars 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 5. desember 1885, Katalog I; , bls. 114 (nr. 197, DKÞ grunnskráði 26. júní 2002, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 5. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 22. júní 2020. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 12. febrúar 2024.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júní 1976. Eldra band fylgir ásamt strimlum sem hafa verið losaðir af spássíum nokkurra blaða.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Ljósvetninga saga með þáttum. Reykdæla saga ok Víga-Skútu. Hreiðars þáttr
Ritstjóri / Útgefandi: Björn Sigfússon
Umfang: 10
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: AM 561 4to og Ljósvetninga saga, Gripla
Umfang: 18
Titill: , Eyfirðinga sǫgur
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: IX
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Vísa í Svarfdælu
Umfang: s. 291-294
Titill: Valla-Ljóts saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Titill: , Eyfirðinga sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 9
Titill: Svarfdæla saga, Rit Handritastofnunar Íslands
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Heslop, Kate
Titill: Gripla, Hearing voices : uncanny moments in the Íslendingasögur
Umfang: 19
Höfundur: Teresa Dröfn Njarðvík
Titill: Í urð, ok urð : hlutverk og áhrif vísna í Svarfdæla sögu, Són
Umfang: 17
Lýsigögn
×

Lýsigögn