Manuscript Detail
AM 161 fol.
View ImagesSögubók; Iceland, 1625-1672
Contents
“Svarfdæla saga”
“[Þ]að er upphaf að þessari sögu …”
“… Margar eru sögur af Valla-Ljóti og var hann hinn mesti höfðingi. Ljótur lét drepa Eyglu-Halla bróður Karls unga.”
“Nú lýkur hér Svarfdæla sögu með þvílíku efni.”
“Saga af viðskiptum þeirra Svarfdæla og Guðmundar hins ríka. 1. kapituli.”
“Sigmundur hér maður. Hann var son Ketils hins rauða …”
“… Og lýkur þar viðskiptum þeirra Guðmundar hins ríka, en Guðmundur hélt virðingu sinni allt til dauðadags. Og lýkur þar þessari sögu.”
“Saga af Vermundi og Víga-Skúta.”
“Þorsteinn höfði hét maður. Hann bjó á Hörðalandi …”
“… Illuga og Birni að fara til Ölvis hins …”
Vantar aftan af sögunni.
Physical Description
Þrettán kver.
- Kver I: blöð 1bis, 1r-8v, 4 tvinn + 1 stakt blað.
- Kver II: blöð 9r-10v, 1 tvinn.
- Kver III: blöð 11r-14v, 1 tvinn + 2 stök blöð.
- Kver IV: blöð 15r-22v, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 23r-30v, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 31r-38v, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 39r-46v, 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 47r-50v, 2 tvinn.
- Kver IX: blöð 51r-60v, 5 tvinn.
- Kver X: blöð 61r-66v, 3 tvinn.
- Kver XI: blöð 67r-75v, 4 tvinn + 1 stakt blað.
- Kver XII: blöð 76r-83v, 4 tvinn.
- Kver XIII: blöð 84r-89v, 3 tvinn.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 240 mm x 140 mm.
- Afmörkun leturflatar með þurroddi (sbr. t.d. blöð 42r, 43r og 51r).
- Línufjöldi er ca 26-29.
- Síðutitill á blöðum 1r-37v: “Svarfdæla.”
- Eyður fyrir upphafsstafi eru á stöku stað (sbr. t.d. 1r, 52r). (Upphafsstafur á blaði 51r virðist ófullgerður).
- Sögur eru kaflaskiptar; víða vantar kaflanúmer en gert er ráð fyrir þeim með auðri línu fyrir ofan texta eftirfarandi kafla.
- Svarfdæla og Valla-Ljóts saga enda í totu.
- Með hendi Jóns Erlendssonar.
- Blendingsskrift.
- Efnisyfirlit með yngri hendi á blaði 1bisr (merkt 1a).
- Blöð 11r-14v eru auð innskotsblöð, e.t.v. bætt við fyrir Árna Magnússon.
- Kaflafyrirsagnir í Svarfdæla sögu eru með yngri hendi (sbr. blöð 1r-37v).
- Spássíugreinar og leiðréttingar hér og þar, að hluta til með yngri hendi (sbr. t.d. blöð 39r, 47r og 66r).
Band frá 1976 (305 mm x 225 mm x 25 mm). Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Handritið liggur með eldra bandi í blárri öskju.
Eldra band frá 1700-1730. Spjöld og kjölur klædd bókfelli.
History
Handritið er talið skrifað á Íslandi og er tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 114, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1625-1672.
Jónas Kristjánsson telur öll önnur pappírshandrit Svarfdælu eiga rætur að rekja til þessa (sbr. Íslenzk fornrit IX, bls. XCII).
Það hefur líklega verið hluti af stærri bók, e.t.v. þeirri sömu og innihélt AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 a fol., AM 169 b fol. og AM 169 d fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.
Bókina sem handritið tilheyrði líklega fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. mars 1977.
Additional
Kålund gekk frá handritinu til skráningar5. desember 1885, Katalog I; bls. 114 (nr. 197, DKÞ grunnskráði 26. júní 2002, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 5. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júní 1976. Eldra band fylgir ásamt strimlum sem hafa verið losaðir af spássíum nokkurra blaða.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Íslenzk fornrit IX | |||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||