Manuscript Detail
AM 157 h fol.
View ImagesSögubók; Iceland, 1600-1700
Contents
“Hér hefur sögu af Hrafni og Gunnlaugi ormstungu eftir fyrirsögn Ara prests hins fróða Þorgilssonar.”
“Þorsteinn hét m(!)maður, hann var Egilsson, Skallagrímssonar, Kvöldúlfssonar, hersir yfir Noregi …”
“… og þótti öllum mikið fráfall Helgu sem von var að. ”
“Og lýkur hér nú sögu Gunnlaugs ormstungu.”
“Þorgils Arason sagði svo fyrir griðum eftir áeggjan Snorra goða á Helgafelli.”
“Það er upphaf griða mála vorra …”
“… sá er rýfur réttartryggðir en hylli sá er heldur, höfum heilir sæst en Guð sé við oss altíð sáttur.”
Hluti sögunnar: Tryggðamál (Griðamál).
“Hér hefur sögu af Vallna-Ljót. Kapituli 1.”
“Sigurður hét maður, hann var son Karls hins rauða …”
“… og þótti Vallna-Ljótur hinn mesti höfðingi en Guðmundur hélt virðingu sinni allt til dauðadags. Og lýkur hér þessari frásögu.”
“Söguþáttur af Illuga Gríðarfóstra. Kapituli 1.”
“Kóngur var réður fyrir Danmörk er Hringur hét …”
“… hann væri hinn mesti kappi og mundi honum trúr sem sér og skildu…”
Einungis fyrsti kapituli sögunnar og upphaf annars; strikað hefur verið yfir upphafið (sjá blað 23v).
Physical Description
- Síðari tíma blaðmerking með blýanti, 1-23.
Þrjú kver:
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-23, 3 tvinn + 1 stakt blað.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 230-255 mm x 135-150 mm.
- Línufjöldi er ca 33-39.
- Síðutitlar.
- Griporð (undantekning blað 15r).
Að mestu með hendi Páls Sveinssonar (blöð 1r-16r), kansellíkrift.
Blöð 17r-23v eru annaðhvort með hendi Páls Sveinssonar eða Kolbeins Hannessonar (sbr. AM 435 b 4to, blöð 7v og 9r (útg. bls. 72)), kansellískrift.
- Spássíugreinar með hendi Þormóðs Torfasonar (sbr. t.d. 12r og 13).
Band frá 1976 (288 mm x 230 mm x 11 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu.
History
Handritið er sennilega skrifað á Íslandi á 17. öld af fyrrnefndum skrifurum Páli Sveinssyni í Flóa og e.t.v. einnig Kolbeini Hannessyni (sbr. Katalog I, bls. 110 og AM 435 b 4to, blað 7v og 9r (útg. bls. 72)).
Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 6 fol., AM 10 fol., AM 143 fol. og AM 193 d fol. og að auki tvö handrit sem nú eru glötuð, Háttalykil Lofts ríka með hendi Páls Sveinssonar og Droplaugarsona sögu með hendi Guðmundar Guðmundssonar (sbr. AM 435 b 4to, blað 7v og 9r (útg. bls. 72 og leiðréttingar)).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVI í safni Þormóðs Torfasonar. Allar sögurnar í bókinni ásamt fleirum (sjá AM 147 fol.) komu til Þormóðar árið 1685 með kaupmanninum á Eyrarbakka, “Andrese Laridtssyne Beck”, frá sr. Torfa Jónssyni í Gaulverjabæ, nema tvær fyrstu og sú síðast talda sem kom til hans frá Árna Magnússyni. Árni tók bókina í sundur árið 1720 (sbr. AM 435 b 4to, blað 9r-10 (útg. bls. 72-73)).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1976.
Additional
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. desember 1885, Katalog I;bls. 110-111 (nr. 193), DKÞ grunnskráði 21. júní 2002, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 3. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Negatíf filma frá 1989 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, ljósmyndari Jóhanna Ólafsdóttir (askja 342).
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||