Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 157 f fol.

Hænsna-Þóris saga ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-11v (bls. 1-22))
Hænsna-Þóris saga
Titill í handriti

Sagan af Hænsa-Þóri.

Upphaf

Oddur hét maður …

Niðurlag

… og var hinn mesti kvenskörungur.

Baktitill

Og lýkur þar Hænsna-Þóris sögu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
12 blöð; (310 mm x 186 mm). Neðsti hluti blaðs 11v er auður, blað 12 er autt.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking: 1-22.
  • Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki: 1-11; blað 12 er ómerkt.

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: blöð 1-6, 3 tvinn.
  • Kver II: blöð 7-12, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 260 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er ca 33-35.
  • Markað hefur verið fyrir innri og ytri spássíu blaða með þurroddi.
  • Griporð á blaði 6v.
  • Kaflaskipting: i-xvi.

Skrifarar og skrift

Skreytingar

  • Bókahnútur í lok sögu (sjá blað 11v).

Band

Pappaband (314 null x 205 null x 6 null) frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.

Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 110, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707.

Það var áður hluti af stærri bók. Í þeirri bók voru einnig AM 173 fol., AM 146 fol., Vatnsdæla saga og AM 157 b fol.

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XI fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon tók hana í sundur.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. júní 1986.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. desember 1885 í Katalog I; bls. 110 (nr. 191), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 2. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.

Viðgerðarsaga

Athugað á verkstæði í Kaupmannahöfn í maí 1986.

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Lýsigögn
×

Lýsigögn