„Saga af Þórði hreðu“
„Þórður hét maður son Hörða-Kára, mikill að virðingu …“
„… Höfum vér eigi heyrt fleira af honum með sannleika sagt.“
og lýkur hér nú sögu Þórðar hreðu.
Gerð: heila sagan.
Fjögur kver:
Pappaband (319 null x 217 null x 8 null) frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.
Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í Katalog I , bls. 109. Virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.
Það er uppskrift eftir pappírshandriti, sem Árni Magnússon sendi Þormóði Torfasyni (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r).
Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r ).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 2. desember 1885, Katalog I; bls. 109 (nr. 186), DKÞ grunnskráði 28. september 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 1. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.