Manuscript Detail
AM 141 fol.
View ImagesFóstbræðra saga; NO, 1690-1697
Contents
Fóstbræðra saga
“Upphaf Fóstbræðra sögu”
“Guð drottinn Jesús Kristus sá til þess þörf vor allra Norðmanna …”
“… svo mundi skáldið vilja kveðið hafa.”
“Nú lýkur hér æfi Þormóðs með þessum atburðum, sem nú voru sagðir.”
Að hluta til uppskrift eftir Flateyjarbók, GKS 1005 fol.
Physical Description
Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með rauðu bleki 1-114. Enn fremur blaðmerkt með rauðu bleki á neðri spássíu 1-57.
Sjö kver.
- Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: bl. 17-24, 4 tvinn.
- Kver IV: bl. 25-32, 4 tvinn.
- Kver V: bl. 33-40, 4 tvinn.
- Kver VI: bl. 41-48, 4 tvinn.
- Kver VII: bl. 49-57, stakt blað, 3 tvinn, 2 stök blöð.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 230-245 mm x 140-145 mm.
- Línufjöldi er ca 30.
- Kaflafyrirsagnir á spássíum.
- Hver ljóðlína vísna er sér um línu.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.
Athugasemdir og lesbrigði á spássíum.
Band frá 1772-1780 (320 mm x 201 mm x 18 mm). Pappaspjöld klædd bókfelli sem fengið er úr gömlu bréfi og mótar fyrir skriftinni á innra byrði þess. Blár safnmarksmiði á kili.
Seðill á fremra spjaldi (151 mm x 93 mm með hendi Árna Magnússonar: “Þesse Fostbrædra saga er tekin ur Volumine 9no. þeirra böka er eg keypte epter Etats-Raad Mejer daudann. Descriptionem huius Exemplaris vide in Consignatione illorum librorum.”
History
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I, bls. 101, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707. Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 67 b fol., AM 172 a fol. og AM 172 b fol. (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 163r-164v).
Bókina sem handritið tilheyrði keypti Árni Magnússon úr búi etatráðs Mejers og tók í sundur 1721. Þormóður Torfason hafði gefið Mejer þá bók 1698 eða 1699 (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 164v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
Additional
VH lagfærði í nóvember 2010.ÞS skráði 28. janúar - 22. maí 2009. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 17. september 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885(sjá Katalog I 1889:101 (nr. 170).
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Fóstbræðra saga | |||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Fóstbræðra saga, STUAGNL, Íslendinga sögur | ed. Björn K. Þórólfsson | 1925-1927; XLIX | |
| Finnur Jónsson | “Þormóðr Kolbrúnarskáld”, | 1932-1933; VII: p. 40-82 | |
| Grönlands historiske Mindesmærker | ed. Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab | II: p. 257-258 | |
| Jónas Kristjánsson | Um Fóstbræðrasögu, | 1972; I | |
| Membrana Regia Deperdita, | ed. Agnete Loth | 1960; V | |
| Care and Conservation of Manuscripts | 2: p. 7-17 |