Manuscript Detail
AM 136 fol.
View ImagesNjáls saga; Iceland, 1640-1643
Contents
“Hér byrjast sögu Brennu-Njáls.”
“Mörður er maður nefndur …”
“… Son Brennu-Flosa var Kolbeinn er ágætastur maður hefur verið einhver í þeirri ætt.”
“Og ljúkum vér þar Brennu-Njáls sögu.”
Physical Description
- Blaðmerking með rauðu bleki; ekki upphafleg:1-89.
- Blöð 1, 10, 20, 30 o.s.frv. eru að auki blaðmerkt með svörtu bleki á rektohlið blaða.
Ellefu kver.
- Kver I: blöð 1r-6v; 6 blöð, 3 tvinn.
- Kver II: blöð 7r-16v; 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver III: blöð 17r-22v; 6 blöð, 3 tvinn.
- Kver IV: blöð 23r-32v; 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver V: blöð 33r-40v; 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41r-50v; 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver VII: blöð 51r-56v; 6 blöð, 3 tvinn.
- Kver VIII: blöð 57r-66v; 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver IX: blöð 67r-72v; 6 blöð, 3 tvinn.
- Kver X: blöð 73r-82v; 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver XI: blöð 83r-89v; 7 blöð, 3 tvinn + 1 stakt blað.
- Texti sést víða í gegn (sbr. t.d. á blöðum 35r-40r).
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 220 mm x 148 mm.
- Línufjöldi er ca 38-42.
- Eyður fyrir upphafsstafi eru gegnumgangandi í handriti. Undantekning er á blaði 1r þar sem fyllt hefur verið í eyðuna.
- Með hendi Jóns Gissurarsonar (sbr. seðil); léttiskrift.
- Nótur á bókfelli í gömlu bandi.
- Band frá 1911-1913 (297 mm x 200 mm x 20 mm). Bókfell á kili, pappírsklæðning.
- Spjöld og kjölur í eldra bandi eru klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti (tvídálka), með nótum (nú í Acc 7).
- Seðill (105 mm x 180 mm) með hendi Árna Magnússonar er framan á saurblaði: “Nials Saga. / med hendi Jons Gissurs sonar. Ur bok i folio (elldre en 1643.) er eg feck af Sveine Torfasyne 1704.”
History
Handritið er skrifað á Íslandi og talið að Jón Gissurarson hafi skrifað það fyrir 1643 (sbr. seðil).
Það er uppskrift eftir Gullskinnu, sem Brynjólfur Sveinsson biskup nefnir svo (sbr. JS 409 4to) og tímasett til um 1640 í Katalog I., bls. 99.
Handritið var upprunalega hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 126 fol., AM 138 fol., AM 165 f fol. og hluti AM 165 m fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá Sveini Torfasyni árið 1724 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
Additional
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 25. nóvember 1885 Katalog I;bls. 99 (nr. 165), DKÞ skráði 13. september 2001, VH uppfærði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 18.-19. nóvember 2008; lagfærði í nóvember 2010
Bundið af Otto Ehlert 1911-1913.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||