Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 134 fol.

Njáls saga ; Ísland, 1625-1672

Innihald

(1r-148v)
Njáls saga
Upphaf

Mörður er maður nefndur …

Niðurlag

… Son Brennu-Flosa var Kolbeinn er ágætastur maður hefur verið einhver í þeirri ætt.

Baktitill

Og lúku vér hér Brennu-Njáls sögu.

Tungumál textans
íslenska

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur gluggum ( 1-4 , 6 , 16-20 , 22-24 , 26 , 30 , 32-35 , 40 , 42-43 , 46-47 , 50-53 , 55 , 57 , 57 , 63-64 , 66 , 69-70 , 72 , 74 , 76 , 78 , 80 , 83-84 , 86 , 89-91 , 94-95 , 98-99 , 101 , 103-105 , 109 , 111 , 113-114 , 116 , 119 , 121-123 , 125 , 127 , 131-132 , 135 , 137-138 , 141 , 144 , 146-147 ) // Mótmerki: Fangamark PH ( 5 , 7-15 , 21 , 25 , 27-29 , 31 , 36-39 , 41 , 44-45 , 48-49 , 54 , 56 , 58-62 , 65 , 67-68 , 71 , 73 , 75 , 77 , 79 , 81-82 , 85 , 87-88 , 92-93 , 96-97 , 100 , 102 , 106-108 , 110 , 112 , 115 , 117-118 , 120 , 124 , 126 , 128-130 , 133-134 , 136 , 139-140 , 142-143 , 145 , 148? , fangamark á blaði 148 er nokkuð óskýrt í handriti).

Blaðfjöldi
i + 148 + i blöð (297 mm x 205 mm).
Tölusetning blaða

  • Eldri blaðsíðumerking, 1-296.
  • Yngri blaðmerking með rauðum lit, 1-148.

Kveraskipan

Fimmtán kver.

  • Kver I: blöð 1-10, 5 tvinn.
  • Kver II: blöð 11-20, 5 tvinn.
  • Kver III: blöð 21-30, 5 tvinn.
  • Kver IV: blöð 31-40, 5 tvinn.
  • Kver V: blöð 41-50, 5 tvinn.
  • Kver VI: blöð 51-60, 5 tvinn.
  • Kver VII: blöð 61-70, 5 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 71-80, 5 tvinn.
  • Kver IX: blöð 81-90, 5 tvinn.
  • Kver X: blöð 91-100, 5 tvinn.
  • Kver XI: blöð 101-110, 5 tvinn.
  • Kver XII: blöð 111-120, 5 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 121-130, 5 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 131-140, 5 tvinn.
  • Kver XV: blöð 141-148, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 260 mm x 150 mm.
  • Síðutitill: Njála.
  • Kaflaskipting: 148 kaflar.
  • Línufjöldi er ca 28.
  • Sagan endar í totu.

Ástand

  • Síðutitill er víða skertur (sbr. blað 30v) eða alveg horfinn (sbr. blað 31r) vegna afskurðar, sem og hafa spássíugreinar skerts (sbr. blað 88r).
  • Texti sést sumstaðar í gegn (sbr. t.d. blað 129).

Skrifarar og skrift

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Lesbrigði á spássíum eru úr Gullskinnu, Gráskinnu og öðrum Njáluhandritum.
  • Leiðréttingar og ættfræðilegar athugasemdir eru með hendi Brynjólfs Sveinssonar biskups (sbr. Om håndskrifterne af Njála. Njála II , bls. 719-720).

Band

Band frá 1911-1913. Bókfell er á kili og hornum, pappírsklæðning; (301 mm x 210 mm x 47 mm).

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).

Fylgigögn

  • Fastur seðill (195 mm x 129 mm (á milli fremra kápuspjalds og fremra saurblaðs) með hendi Árna Magnússonar: Þessi Njáls saga er úttekin úr bók er ég fékk frá séra Ólafi Gíslasyni að Hofi í Vopnafirði.
  • Fastur seðill (á milli blaða 85v og 86r).

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 98, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1625-1672. Handritið er uppskrift eftir skinnhandriti, mögulega Gráskinnu, GKS 2870 4to og líklega skrifað fyrir Brynjólf Sveinsson biskup (sbr. seðil í AM 135 fol. og Jón Þorkelsson í Om håndskrifterne af Njála, Njála II, bls. 719-20).

Jón Þorkelsson nefnir handritið Hofsbók í Om håndskrifterne af Njála, Njála II .

Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Sú bók innihélt einnig AM 182 fol.

Ferill

Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá sr. Ólafi GíslasyniHofi í Vopnafirði (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. febrúar 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 18. nóvember 1885 Katalog I; bls. 98 (nr. 163), DKÞ skráði 10. september 2001, VH uppfærði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 18.-19. nóvember 2008; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 18. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Bundið af Otto Ehlert 1911-1913.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Njáls saga

Lýsigögn