Manuscript Detail
AM 128 fol.
View ImagesSögubók; Iceland, 1600-1699
LATIN SMALL LETTER O WITH CURLSpecial character shown similar to its original form.
Contents
Fimm brot.
“Ketill flatnefur hét maður …”
“… nefni ég til þess Björn …”
Uppskriftin er ættuð frá AM 132 fol. (sbr. Kålund, Katalog I, bls. 91).
“… eftir bróður sinn átti að mæla …”
“… þeirra strauma er á beiða …”
“… setur nú bú saman í Hjarðarholti …”
“… þar um Hörðaland …”
“… Í brókum smalasveinn reið óðum hesti …”
“… slík illmenni hið næsta …”
“… var í henni hið dýrsta klæði …”
“… heyrt þessa sögu lengri.”
“Saga af Þórði hreðu”
“Þórður hét maður son Hörða-Kára …”
“… og lýkur hér nú sögu Þórðar hreðu.”
Það vantar í söguna milli blaða 6 og 7, frá 4. línu í vísu til “Þórður var knástur”.
“Hér hefst Vatnsdæla”
“Maður er nefndur Ketill …”
“… svo sem sá er framar elskaði sannan Guð.”
“Endir Vatnsdælu.”
Að mati Kålunds er Vatnsdæla hér tekin úr Vatnshornsbókinni (sbr. Katalog I, bls. 92).
Physical Description
- Mörg blöð hafa verið skorin úr handritinu og blað 5 er skaddað vegna afskurðar.
- Á neðri spássíu blaðs 34v stendur “hér vantar c. 2 blöð.”
- Blöð 35 og 36 hafa ekki verið heil þegar á þau var skrifað.
- Á blaði 37r hefur textinn skaddast og stafir síðustu 6 lína í hægri dálki máðst burt að hluta.
- Blöð eru sum stökk og skítug, sjá til dæmis bl. 1r og 7r.
Með hendi Brynjólfs Jónssonar á Efstalandi., blendingsskrift.
Óþekktur skrifari skrifar niðurlag lokakafla Vatnsdæla sögu á blöðum 24v-25r, kansellískrift.
Síðasti kafli Vatnsdæla sögu er viðbót með yngri hendi.
Band er frá ca 1911-1913. Bókfell á kili og hornum, pappírsklæðning.
- Seðill (195 mm x 145 mm) með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík er límdur á blað 2r: “laxdæla sagan i þessare bok er progenies þeirrar membrana in folio, sem Biorn magnusson gaf Thomæ Bartholino viger þad vijst. hün kan þiena til samburdar, þar sem pergamentz bökinne er nu olesordinn. Þordar hredu saga. Eigels saga i þessare bok er ecke tekenn ur nefndre Biorn Magnussonar Membrana, er sumstadar styttre, og vijda odruvijs ordud. Synest annars ad vera vijda rängt skrifud. Watnsdæla sagann virdest mier vera eins og þær almennelegu, id est, tekenn ur Vatnshorns bokinne, sem nü ä heima in Bibliotheca Reseniana Hafniæ, enn er hier afleittlega rängt skrifud. ”.
- Seðill (188 mm x 142 mm) með hendi Árna Magnússonar er límdur á blað 2r: “Mer virdist sama hond ä þessari bök, sem ä Hungrvoku og Þorlaks sogu, er Hr Þorlakr hefur lated skrifa ä kalfskinn in 4to, og eg nu ä. Er so likast til ad geta, ad Hr Þorlakr hafi eg þessa bok rita läted. Kannske hun se komin frä Holum med Þormodi Torfasyne Anno 1662. Mig minner Thomæ Bangii nafn stæde a bokenne, þar sem saur blad ed er nu raderad. Enn eg hefi feinged hana apter Rosencrantz, sem eg sie af numero 625. sem framanä saurbladenu stendur. hoc ultima scripti 1723. ”.
History
Handritið er skrifað á Íslandi. Talið er að Brynjólfur Jónsson hafi skrifað það fyrir Þorlák Skúlason biskup. Það er tímasett til 17. aldar íKatalog I, bls. 91.
Á seðli með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík eru athugasemdir um þrjár sagnanna og tengsl Laxdæla sögu og Egils sögu við fólíóhandrit sem Björn Magnússon gaf Thomas Bartholin. Vatnsdæla sögu telur Jón skrifaða eftir Vatnshyrnu í bókasafni Resens.
Árni Magnússon keypti bókina eftir Jens Rósencrantz 1695.
Hún er sennilega komin frá Hólum með Þormóði Torfasyni 1662.
Nafnið Thomas Bangius stendur innan á titilblaði.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 8. nóvember 1973.
Additional
Viðgert og bundið af Otto Ehlert ca 1911-1913.
Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||









