Manuscript Detail
AM 126 fol.
View ImagesLaxdæla og Eyrbyggja; Iceland, 1635-1648
Contents
“Þessi saga kallast Laxdæla af gömlum Íslendingum”
“[K]etill flatnefur hét maður, sonur Bjarnar bunu … ”
“… Bolli fékk Sigríði gjaforð göfugt og lauk vel við hana og höfum vér ei heyrt þessa sögu lengri.”
Laxdæla saga með Bollaþætti.
Einungis tvö erindi úr kvæðinu; þau sömu og eru í AM 125 fol. og AM 127 fol.
“Saga af nokkrum Íslendingum og er kölluð Eyrbyggja”
“Ketill flatnefur hét einn ágætur hersir í Noregi … ”
“… Nú lýkur hér sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga.”
Physical Description
- Blaðmerkt er með dökku bleki, 1, 10, 20… 100, 110, 115. Ranglega er blaðmerkt, 10, 20… 100, 110, 115. Villan felst í því að blað 11 er ranglega merkt blað 10 og hefur það áhrif á blaðtalið í framhaldinu.
- Leifar af blaðmerkingu í rauðum lit eru í hægra horni rektóhliða blaða. Seinni tíma blaðmerking er skrifuð ofan í þá fyrri með blýanti, 1-116.
Fimmtán kver:
- Kver I: 1r-8v, 3 tvinn + 2 stök blöð.
- Kver II: 9r-16v, 4 tvinn.
- Kver III: 17r-24v, 4 tvinn.
- Kver IV: 25r-32v, 4 tvinn.
- Kver V: 33r-40v, 4 tvinn.
- Kver VI: 41r-50v, 5 tvinn.
- Kver VII: 51r-58v, 4 tvinn.
- Kver VIII: 59r-64v, 1 tvinn + 4 stök blöð.
- Kver IX: 65r-72v, 4 tvinn.
- Kver X: 73r-80v, 4 tvinn.
- Kver XI: 81r-88v, 4 tvinn.
- Kver XII: 89r-96r, 4 tvinn.
- Kver XIII: 97r-104v, 3 tvinn + 2 stök blöð.
- Kver XIV: 105r-114v, 5 tvinn.
- Kver XV: 115r-116v, 2 stök blöð.
- Með hendi Jóns Gissurarsonar (sjá seðil), fljótaskrift.
- Niðurlag sögunnar er með hendi skrifara Árna Magnússonar.
- Síðustu 8 línum Eyrbyggja sögu á blaði 116r, hefur verið bætt við með hendi frá því um 1700, í stað upprunalegs endis sem hefur sennilega skemmst vegna raka.
- Kaflanúmer og efnistilvísanir eru víða á spássíum.
- Band frá 1973 (297 mm x 227 mm x 33 mm). Pappaspjöld eru klædd fínofnum líndúk; skinn er á kili og hornum og blöð saumuð á móttök. Ný saurblöð.
- Bókfellsband frá tíma Árna Magnússonar (297 mm x 195 mm x 27 mm). Eldri saurblöð fylgja eldra bandi.
- Á kjöl eldra bands eru skrifaðir titlarnir: Laxdæla saga; Eyrbyggja saga.
- Blár safnmarksmiði er á kili.
- Seðill (133 mm x 183 mm) með hendi Árna Magnússonar: “Laxdæla saga. Eyrbyggia-Saga med hendi Jons Gissurssonar, ur bok in folio (elldre en 1643.) er eg feck af Sveine Torfasyne 1704.”
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu.
History
Handritið er skrifað á Íslandi en Jón Gissurarson er talinn hafa skrifað það ca 1635-1648. Það er tímasett til fyrri hluta 17. aldar í Katalog I.
Spássíutilvitnanir í handriti eru samskonar og í AM 125 fol.
Í sama handriti og AM 126 fol. voru AM 136 fol., AM 138 fol., AM 165 f og m fol.
Handritið var í bók sem Árni Magnússon fékk árið 1704 frá Sveini Torfasyni frá Gaulverjabæ (sjá seðil), sonarsyni skrifarans (sbr. Katalog I>bls. 91).
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 30. maí 1974.
Additional
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 16. nóvember 1885 Katalog I;bls. 90-91(155), ÓB skráði 31. ágúst 2001, VH endurskráði handritið 18.-19. nóvember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Bundið af Birgitte Dall 1973. Eldra band fylgir.
Bundið í Kaupmannahöfn ca 1700-1730.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||