„Íslendinga saga.“
Handritið er runnið frá AM 114 fol.
Guðbrandur Vigfússon 1878, Sturlunga saga
„Íslendinga saga.“
„[G]eirmundur heljarskinn var son Hjörs kóngs Hálfssonar …“
„… þá stóðu þeir jafnan að málum hvor með öðrum svo lengi sem þeir lifðu. F.“
„Nokkrar ættartölur eða mannanöfn Íslendinga sem fram koma í þessari sögu og byrjast hér annar þáttur af Einari Þorgilssyni.“
„[S]æmundur hinn fróði átti Guðrúnu dóttur Kolbeins …“
„… orti Þorvarður kvæði um bróður sinn, þóttist svo hyggja best af harmi eftir hann. F.“
„Þriðji þáttur Íslendinga. Fyrst um fæðing Guðmundar Arasonar er síðar varð biskup og hans uppfóstur og lærdóm. Hér er og getið Þorláks biskups er áður hefur kallaður verið hinn helgi. Sagan af Guðmundi dýra og hans gjörninga, hans mótstöðumannadeilur, manndráp, brenna og fleira sem um þann tíma hefur við borið.“
„[N]ú tek ég þar til frásagnar er Guðmundur son Ara var fæddur …“
„… Kolbeini líkuðu illa þær málalyktir en Sighvati þó verr.“
„Nokkrar ættartölur frá norskum og til Gissurar hvíta og frá honum hafa þeir fyrstu Skálholtsbiskupar sinn uppruna, svo og Þorvaldur Gissursson og hans synir: Gissur son hans sem síðar varð jarl, átti hann við sinni síðari konu, Þóru dóttur Guðmundar gríss og Sólveigar dóttur Jóns Loftssonar.“
„Ketilbjörn, maður norrænn, mjög frægur …“
„… Sigurður gaf þau Tuma Sighvatssyni og komst hann svo að þeim.“
„Fjórði þáttur af Íslendingum og er fyrst af Guðmundi biskupi, Kolbeini Tumasyni og þeirra viðskiptum. Jafnframt þessu er sagan af Þorvaldi Vatnsfirðingi og Hrafni Sveinbjarnarsyni og þeirra deilum, item hvernig þeir helstu höfðingjar settu sig móti biskupi eftir fall Kolbeins.“
„[Þ]á er Guðmundur biskup kom út …“
„… mælti þá Styrmir fyrir griðum og skildu við það.“
„Fimmti þáttur af Íslendingum. Hvernig Þorvaldssynir veittu heimsókn og rændu á Sauðafelli, drápu og særðu þar menn og sátt þeirra við Sturlu; af Guðmundi biskupi og hans mótgangi og ofsóknum: Sturli lætur drepa Vatnsfirðinga; hans sigling og Rómganga; útkoma aftur; þræta Sighvats og Kolbeins og sátt, sigling Kolbeins og afturkoma; af yfirgangi Órækju og afdrifum samt öðrum þrætum og manndrápum er á þeim árum hafa til fallið.“
„[H]ér byrja ég sögu af sonum Þorvalds í Vatnsfirði …“
„… Á því sama ári er Þorvaldur andaðist, andaðist og Sigurður Ormsson, Flosi munkur Bjarnason og digur Helgi.“
„Sjötti þáttur Íslendinga. Af Sighvati á Grund og Sturla syni hans og þeirra yfirgangi; af bardögum Sturla og aðtektum, item hvernig Kolbeinn ungi, Gissur Þorvaldsson og fleiri aðrir safna liði; þeir feðgar í annan stað með því fleira sem fyrr og síðan gjörðist; um fall þeirra feðga og annarra á Örlygsstöðum: Kolbeinn gjörðist einvaldsherra fyrir norðan; sigling Snorra og útkoma, hans aftekt af Órækju, drápi Klængs og fleirum tilburðum hér á landi um þann tíma.“
„Gissur Þorvaldsson bjó að Reykjum …“
„… að draga saman vináttu þeirra frænda.“
„Sjötti þáttur um Íslendinga. Af útkomu Þórðar Sighvatssonar kakala; af utanferð Gissurar og Órækju; af liðsdrætti Þórðar Sighvatssonar kakala og hans fylgjara; af Kolbeini unga og viðskiptum þeirra Þórðar, deilum, manndrápum, óróa, orrustum, af þeirra bardaga á Flóanum. Kolbeinn ungi andast ári seinna; Þórður sest á Grund, nær goðorðum og eignum þeim er faðir hans átti. Brandur Kolbeinsson gjörðist höfðingi yfir Skagafirði og Fljótum. Gissur kemur út. Órækja andast í Noregi. Bardagi Þórðar á Haugsnesi og fall Brands; Þórður og Gissur leggja öll sín mál á kóngsdóm og sigla; kóngur skipar Þórð yfir landið; hann kemur út, er hér nokkur ár; kóngur boðar hann utan; af Ormssonum, Rómgöngu Gissurar og öðru fleira.“
„[E]inum vetri eftir lát Snorra Sturlusonar hófust þeir atburðir er mörg tíðindi gjörðust af síðan …“
„… þeim gekk allt vel suður og sunnan komu og allir heilir aftur til Noregs.“
„Sjöundi þáttur um Íslendinga. Af útkomu Þorgils Böðvarssonar, Gissurar Þorvaldssonar og annarra Íslendinga; skikkun Hákonar kóngs um eignir Snorra og annað hér á landi; Hrafn Oddsson og Sturli Þórðarson gjöra heimsókn í Stafholt; Þorgils lofar að vera þeim meðfylgjandi í aðförum að Gissuri en það bregst; hann ríður til Hóla; Hrafn og Sturli snúa aftur vegna veðráttu. Gissur gjörist höfðingi í Skagafirði: Hrafn, Sturli og hann sættast með öðru fleira.“
„Böðvar son Þórðar Sturlusonar bjó að Stað …“
„… Hrafn var boðsmaður Gissurar.“
„Áttundi Íslendingaþáttur. Af Eyjólfi Þorsteinssyni, hans liðssafnaði; brullaupi og brennu á Flugumýri; Gissur kemst af undarlega; fær sér lið, drepur brennumenn hvar hann kann; setur Odd Þórarinsson yfir hérað en siglir sjálfur; Eyjólfur safnar liði; fer að Oddi; Oddur fellur en verst þó drengilega; nokkuð seinna hefnir Þorvarður Odds bróður síns með hjálp og tilstyrk Þorgils og Sturlu svo Eyjólfur fellur. Hrafn og Ásgrímur flýja; biskup bannsyngur Þorgils og Þorvarð; Þorgils verður höfðingi yfir Skagafirði móti biskups vilja; Hrafn, Sturli og Þorgils sættast, item biskup og Þorgils; biskup siglir, andast í Noregi; af óvinskap og viðskiptum Hrafns og Sturlu að nýju og þeirra sátt; einnig af drápi Þorgils.“
„[U]m sumarið áður en brullaupið var um haustið á Flugumýri …“
„… stóð þetta mál þá kyrrt, dróst fundur undan og varð engi á því sumri.“
„Níundi þáttur af Íslendingum. Gissur Þorvaldsson kemur út með jarlsnafni, kaupir Stað á Reynisnesi; gjörist höfðingi norðanlands; Sturli Þórðarson giftir tvær dætur sínar; Ásgrímur og jarlinn sættast; Ásgrímur fer til Róm; kemur út með Hallvarði gullskó; Íslendingar játa hlýðni og skatti Hákoni kóngi; Gissur jarl í háska; Þórður Andrésson aftekinn; ósamþykki Hrafns og Sturlu; Sturla hlýtur að sigla; skipaður síðar til lögmanns; andast í góðri elli.“
„[N]ú byrja ég þar frásögu er Gissur Þorvaldsson kemur út frá Noregi …“
„… er hann hafði nær mesta elsku á haft af öllum helgum mönnum.“
„Tíundi þáttur af Íslendingum. Sagan af Árna biskupi og hvernig bændur urðu þrengdir frá sínum óðulum með bannfæringum og ýmislegum tilfellum, hvað um þann tíma hefur tilborið hér á landi og Noregi; Hrafn Oddsson siglir og fleiri aðrir; hann andast í Noregi.“
„[H]erra Árni biskup er þessi frásögn er af skrifuð var son Þorláks Guðmundssonar …“
„… og margar gersemar aðrar. Hann dó anno Kristi 1320.“
Brynjólfur Sveinsson biskup taldi 80. kap. tíunda þáttar saminn af sr. Jóni Arasyni í Vatnsfirði (sbr. spássíugrein við upphaf kaflans á blaði 501r).
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Vasi með tveimur bókstöfum að ofan, virðist vera SV // Ekkert mótmerki ( 1 , 12 , 142-143 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur gluggum ( 2-3 , 6-7 , 11 , 13 , 16-17 , 23 , 26-27 , 29-30 , 35 , 37 , 39-40 , 42-44 , 46 , 50 , 52 , 54 , 56 , 58 , 60 , 62-64 , 66 , 70 , 72 , 75-76 , 78-82 , 84 , 89 , 91-92 , 94 , 97 , 101 , 104-105 , 107-108 , 110 , 112 , 114 , 121-123 , 127 , 132-133 , 136-139 , 141 , 144 , 147 , 149 , 153 , 157 , 161-162 , 164 , 167-168 , 171-173 , 177-180 , 183 , 185-186 , 189 , 193 , 197 , 200 , 203 , 205-206 , 208 , 212-213 , 216-218 , 220 , 222-223 , Hluti af blaði 56 er auð síða) // Mótmerki: Fangamark PH eða IH ( 4-5 , 8-9 , 14-15 , 18 , 20-22 , 24 , 28 , 31-32 , 34 , 36 , 38 , 41 , 45 , 47-49 , 51 , 53 , 55 , 57 , 59 , 61 , 65 , 67-69 , 71 , 73-74 , 77 , 83 , 85-88 , 90 , 93 , 95-96 , 98-100 , 102-103 , 109 , 111 , 113 , 115 , 117 , 120 , 124-126 , 128-131 , 134-135 , 140 , 146 , 148 , 150-152 , 154 , 158-160 , 163 , 165-166 , 169-170 , 174-176 , 181-182 , 184 , 187-188 , 190-192 , 194 , 198-199 , 201-202 , 204 , 207 , 209-211 , 214-215 , 219 , 221 , 224-225 , 227 , 233 , 235-243 , 249 , 254-257 , 260-261 , 264-265 , 268-270 , 272-273 , 276 , 284-288 , 290 , 292 , 296 , 299 , 301-302 , 304 , 307 , 309 , 313 , 315-317 , 319 , 321-323 , 327 , 329 , 334-337 , 339 , 342-343 , 346-347 , 349 , 351-353 , 362 , 364 , 366-368 , 372 , 374-376 , 379-381 , 385-389 , 392-393 , 397-399 , 401 , 403 , 407-408 , 411-412 , 415 , 419 , 421-423 , 425-426 , 430-432 , 435 , 437-439 , 443 , 445-446 , 449 , 451-452 , 455-458 , 460 , 466-467 , 469 , 471 , 474 , 480-481 , 483-484 , 487 , 490-491 , 493-494 , 499-500 , Fangamörkin í handritinu geta verið nokkuð óskýr, einkum á blöðum 124, 128-129, 146, 158, 188, 192 og 198).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Kastalaturn, tveir turnar með fjórum gluggum og lindifuru // Ekkert mótmerki ( 10 , 19 , 144-145 , 298 , 350 , 495 , 501 ).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum // Ekkert mótmerki: 226 , 228-232 , 234 , 244-248 , 250-253 , 258-259 , 262-263 , 266-267 , 271 , 274-275 , 277-283 , 291 , 293 , 295 , 297 , 300 , 303 , 305-306 , 308 , 310-312 , 314 , 318 , 320 , 324-326 , 328 , 330-333 , 338 , 340-341 , 344-345 , 348 , 354-356 , 358-361 , 363-365 , 369-371 , 373 , 377-378 , 382-384 , 390-391 , 394-396 , 400 , 402 , 404-406 , 409-410 , 413-414 , 416-418 , 420 , 424 , 427-429 , 433-434 , 436 , 440-442 , 444 , 447-448 , 450 , 453-454 , 459 , 461-465 , 468 , 470 , 472-473 , 475-476 , 478-479 , 482 , 485-486 , 488-489 , 492 , 497-498 ).
Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Vasi með tveimur bókstöfum að ofan, virðist vera SV // Ekkert mótmerki ( 289 , 357 , 496 ).
53 kver (I: 24 kver, II: 29 kver).
Með hendi Jóns Erlendssonar, blendingsskrift.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1639-1672 en til 17. aldar í Katalog I , bls. 79. Handritið er annaðhvort skrifað eftir AM 114 fol. eða runnið frá því. Kafli 80 er þó viðbót.
Brynjólfur Sveinsson biskup mun fyrstur hafa átt handritið (sjá bl. 501r) en síðar Þorbjörg Vigfúsdóttir (sjá bl. 339v). Þórður Jónsson, bróðursonur Þorbjargar, lét Þormóð Torfason hafa handritið upp í skuld föður síns Jóns Vigfússonar Hólabiskups. Handritið var nr. XV fol. í safni Þormóðs (sbr. AM 435 b fol.). Þormóður færði Árna Magnússyni bókina að gjöf að Stangarlandi, 17. október 1712 (sbr. blað 1r og 502v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. nóvember 1973.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 2. nóvember 1885 Katalog I , bls. 79- 80 (143), DKÞ færði inn grunnupplýsingar 27. nóvember 2001, VH skráði handritið skv. TEIP5 reglum 12.-13. febrúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞS lagfærði 14. desember 2009. ÞÓS bætti við skráningu 9. júní 2020. ÞÓS skráði 10. júní 2020.
Viðgert og bundið í tvö bindi í Kaupmannahöfn í mars 1966.
Gömul viðgerð á blöðum fremst og aftast í handritinu (sjá um ástand).