Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 113 g fol.

Íslendingabók ; Ísland, 1650-1686

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-12r)
Íslendingabók
Titill í handriti

Schedæ Ara prests fróða

Vensl

Byggt á AM 113 a fol.

Tungumál textans
íslenska
1.1 (1r)
Formáli
Upphaf

Íslendingabók gjörða eg fyrst biskupum vorum …

Niðurlag

… að öllum Norvegi

Athugasemd

Fyrir neðan formálann og á undan meginmálinu er yfirlit yfir efni bókarinnar.

Efnisorð
1.2 (1r-11r)
Um Íslandsbyggð
Titill í handriti

Incipit libellus Islandorum.

Upphaf

Ísland byggðist fyrst úr Norvegi á dögum Haralds hins hárfagra Halfdanarsonar …

Niðurlag

… Hér lýkur sjá bók.

Efnisorð
1.3 (11r-12r)
Ættartölur
Skrifaraklausa

Þessar schedæ Ara prests fróða og frásögn er skrifuð eftir hans eiginhandskrift á bókfelli (að menn meina) í Villingaholti af Jóni p. Erlendssyni anno domini 1651, mánudaginn næstan eftir Dominicam jubilate. Jón Erlendsson p. mpp. (sbr. blað 12r).

Efnisorð
1.3.1 (11r-11v)
Kyn biskupa Íslendinga og ættartala
Titill í handriti

Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala

Upphaf

Ketilbjör(!) landnámsmaður …

Niðurlag

… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.

Efnisorð
1.3.2 (11v-12r)
Nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga
Titill í handriti

Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga

Upphaf

[I]ngvi Tyrkjakonungur …

Niðurlag

… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
i + 13 + i blöð (204 mm x 160 mm), þar með talið blað merkt fylgigagn 3. Blað 12r er autt að hálfu; blað 12v er autt.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með dökku bleki, 1, 5, 10, 12, síðari tíma viðbót.
  • Blaðmerkt er með rauðu bleki, 1-12, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

4 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 2 (eitt tvinn + tvö blöð)
  • II: bl. 1-9 (4 tvinn + eitt blað: 1+8, 2+7, 3+6, fylgigögn 3 á milli bl. 3 og 4, 4+5)
  • III: bl. 10-13 (2 tvinn: 10+13, 11+12)
  • IV: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 157 mm x 120 mm.
  • Línufjöldi er ca 18-20.

Ástand

  • Bleksmitun.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, skrifari er óþekktur; kansellískrift.

Skreytingar

Upphafstafir eru skrifaði stærri en meginmál (1-2 línur) og er skreytt með breiðum línum og auka flúr.

Fyrsta fyrirsögn er skrifuð með feituletri. Aðrar fyrirsagnir eru aðeins stærri en texti meginmáls.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Band (210 mm x 184 mm x 7 mm) frá 1971. Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum, saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Handritið er í öskju með AM 113 b-k fol.

Eldra band frá 1880-1920. Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (Acc 7).

Eldra band er ekki með í öskju.

Fylgigögn

Tveir seðlar:

  • Fastur seðill (á milli fremra saurblaðs verso og aftari seðils) þar sem fram koma upplýsingar um safnmark handrits og innihald.
  • Fastur seðill með hendi Árna Magnússonar (á milli fremri seðils og blaðs 1r) (193 mm x 163 mm) þar sem fram koma upplýsingar um uppruna handrits og feril: Þessar Ara fróða Schedas fékk ég 1712 í október hjá monsieur Þormóði Torfasyni. Monsieur Þormóður hefur þær fengið frá magister Þórði Þorlákssyni biskupi í Skálholti. Ég hefi séð bréf nefnds magisters Þórðar til Þormóðar dat. Skálholti 1686, 28. ágúst hvar inni í hann segir honum með bréfinu senda fyrrnefndar Ara fróða Schedas. Og var það svo 2 árum áður en þær á prent útgengu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi eftir AM 113 a fol. (B-gerð). Það er tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 77. Það hefur ekki verið skrifað eftir 1686 því þá fékk Þormóður Torfason handritið.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Þormóði Torfasyni í október 1712 en Þormóður hafði fengið það sent frá Þórði Þorlákssyni biskupi árið 1686 (sbr. seðil). Árni hafði fengið handritið að láni 1689-1690 og notað lítillega við sína eigin uppskrift í AM 365 4to.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 30. október 1885 Katalog I; bls. 77 (nr. 138), DKÞ grunnskráði 21. nóvember 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 8. febrúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. EM uppfærði kveraskipan 20. júní 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 7. febrúar 2024.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1971.

Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920. Það band er nú í Acc 7.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Jørgensen, Jon Gunnar
Titill: , The lost vellum Kringla
Umfang: XLV
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Lýsigögn
×

Lýsigögn