Manuscript Detail
AM 105 fol.
View ImagesLandnámabók og Kristni saga; Iceland, 1650-1660
Contents
Landnámabók
“Hér hefir Landnámabók”
“Á þeim tíma er Ísland fannst …”
“… En landið var alheiðið nær hundraði vetra.”
Á undan fer formáli: “Þetta er prologus fyri bók þessi” (bl. 1r).
Eyður á bl. 10v og 27r til að marka eyður í forriti.
Kristni saga
“Hér hefur Kristni sögu”
“Nú hefur það hversu kristni …”
“… En Ólafur konungur Tryggvason barðist á Orminum langa næsta dag eftir Maríumessu síðari.”
Án viðaukans í AM 104 fol., um útlenda biskupa á Íslandi.
Physical Description
- Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með svörtu bleki, 1-194.
- Það hefur einnig verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-97.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 240 mm x 140 mm.
- Línufjöldi er 25-27.
- Eyður víða fyrir upphafsstafi og kaflafyrirsagnir, sem allmörgum hefur verið sleppt.
Með hendi Jóns Erlendssonar, blendingsskrift.
Skinnband frá 1992 (317 mm x 208 mm x 33 mm). Fimm saurblöð hvoru megin eru úr þessu bandi. Ræmur úr eldri saurblöðum eru á milli tveggja fremstu saurblaðanna.
Eldra bókfellsband frá 1700-1730 fylgir. Spjöld og kjölur klædd bókfelli. Átta saurblöð fremst og sjö aftast eru úr þessu bandi.
Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar:
- Seðill 11 (186 mm x 154 mm): “Originum Jslandicorum librum (Landanamabok) scripsit Sturla Legifer (Nomophylax) Jslandiæ, Thordi filius, qui obiit 1284. Alium origg. Jsland. librum scripsit Styrmerus Prior, qvi decessisse scribitur 1245. Ex hisce binis Codicibus unum fecit Haucus (Hóicus) Erlendi filius, Nomophylax vel Supremus Jslandiæ Judex, qvi vixit 1306. [yfir línu: et sequentibus.] addiditqve genealogiarum continuationes usqve ad sua tempora. Omnes hi in Jslandiâ vixere, et duo priores Jslandi omnino fuere. Hójcus forte natione Norvegus erat, de qvo tamen certo non sum.”.
- Seðill 22(164 mm x 105 mm): “Þetta er þess slags Landnama bok sem Biörn ä Skardzä, i sinne Collection af Landnamum kallar Hauksbok [strikað undir tvísvar]”
- Seðill 33 (163 mm x 105 mm): “þessa Landnamabok med Kristni Sögu liedi mier 1704. Sr Halldor Torfason i Bæ i Floa. 1706. keypti eg bokina af Þuridi Sæmundz dottur, so ad hun er mïn.”
History
Handritið var skrifað á Íslandi ca 1650-1660, en tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 70.
Skrifað eftir Hauksbók meðan hún var heil en leifar úr henni af frumriti Landnámabókar eru í AM 371 4to. Aðrir hlutar Hauksbókar eru í AM 544 4to og AM 675 4to.
Fyrsta kver þessa handrits (bl. 1-10) var um tíma í AM 107 fol. og fyrsta kver þess handrits var hér, en þeim var víxlað þegar rannsókn í tengslum við útgáfu Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab árið 1843 leiddi í ljós að handritin höfðu blandast (sbr. Íslendinga sögur I, Kaupmannahöfn 1843, bls. XV-XXII og Katalog I, bls. 70.
Árni Magnússon fékk handritið að láni hjá Halldóri Torfasyni í Bæ í Flóa árið 1704. Halldór fékk það eftir föður sinn Torfa Jónsson í Gaulverjabæ, sem hefur erft það eftir Brynjólf Sveinsson biskup. Árið 1706 keypti Árni það af Þuríði Sæmundsdóttur (sbr. seðil 3).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1973.
Additional
ÞS skráði 12. september til 2. desember 2008. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 14. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. október 1885(sjá Katalog I 1889:70-71 (nr. 124).
Viðgert og bundið í The Cambridge Colleges Library Conservation Consortium 1992.
Ragnar Einarsson bókbindari vann við handritið árið 1989.
Leyst úr eldra bandi árið 1973. Efni úr því bandi fylgir.
Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Ljósprent í Landnámabók. Íslenzk handrit, Series in folio vol. III p. 185-347 (1974).
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| ÍF | XV: p. 3-48 | ||
| Eyrbyggja saga, | ed. Einar Ól. Sveinsson, ed. Matthías Þórðarson | 1935; IV | |
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Antiquarisk Tidsskrift | ed. Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab | ||
| Íslendínga sögur: udgivne efter gamle Haandskrifter | ed. Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab | 1843-1889; I-IV | |
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Landnámabók, Íslenzk Handrit, Series in folio | ed. Jakob Benediktsson | 1974; III | |
| Antiqvitates Americanæ | p. 209 | ||
| Antiquités Russes | ed. C. C. Rafn | II: p. 231 | |
| Biskupa sögur | ed. Hið Íslenzka bókmentafèlag | I | |
| Bjarni Einarsson | Litterære forudsætninger for Egils saga, | 1975; VIII | |
| Studier i nordisk Grammatik | p. 197 | ||
| Inngangur | 14: p. 189 | ||
| Fornsögur: Vatnsdælasaga, Hallfreðar saga, Flóamanna saga | ed. Guðbrandur Vigfússon, ed. Theodor Möbius | p. xxix | |
| Linguistic studies, historical and comparative | |||
| Grönlands historiske mindesmærker | III: p. 209 | ||
| Íslendínga sögur: udgivne efter gamle Haandskrifter af det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab | ed. Jón Sigurðsson | I: p. xiv, xxiii-xxiv | |
| Íslendínga sögur: Eptir gömlum handritum útgefnar at tilhlutun hins konúnglega norræna Fornfræða fèlags | ed. Þorgeir Guðmundsson, ed. Þorsteinn Helgason | I: p. 8 | |
| Landnámabók, Íslenzk Handrit, Series in folio | ed. Jakob Benediktsson | 1974; III | |
| Skarðsárbók: Landnámabók Björns Jónssonar á Skarðsá, Rit Handritastofnunar Íslands | ed. Jakob Benediktsson | 1958; I | |
| Two treatises on Iceland from the 17th century, | ed. Jakob Benediktsson | 1943; III | |
| Versene i Landnámabók | |||
| Hauksbók: the Arna-Magnæan Manuscripts 371, 4to, 544, 4to, and 675 4to, | ed. Ejnar Munksgaard | 1960; V | |
| Jón Helgason | “Til Hauksbóks historie i det 17. århundrede”, | p. 1-48 | |
| Kristni-saga | |||
| Landnámabók | |||
| [Ritdómur um Hauksbók udgived efter de arnamagnæanske håndskrifter…] | p. 290 | ||
| [Ritdómur um Landnámabók. Hauksbók, Sturlubók, Melabók] | XVIII: p. 193 | ||
| Grænland í miðaldaritum | p. 78nm, 318 | ||
| Rómversk tala af týndu blaði úr Hauksbók | p. 42-48 | ||
| Textabrot úr Resensbók Landnámu | |||
| ÍF | XV,1: p. clvii-clix | ||
| Alfræði Sturlu Þórðarsonar | p. 37-60 |