Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 34 4to

Sögubók ; Ísland, 1803-1804

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-54v)
Bevers saga
Titill í handriti

Bjefusar saga

Efnisorð
2 (55r-68v)
Þorsteins þáttur bæjarmagns
Titill í handriti

Sagan af Þorsteini Bæjarmagn

3 (69r-74v)
Þorsteins þáttur stangarhöggs
Titill í handriti

Söguþáttur af Þorsteini stangarhöggi

Skrifaraklausa

Enduð d. 12. febrúarii 1803 af G[uðmundi] I[lluga]s[yni]

4 (75r-80v)
Rauðúlfs þáttur
Titill í handriti

Söguþáttur af Rauðúlfi og sonum hans

Efnisorð
5 (81r-97r)
Gautreks saga
Titill í handriti

aldrei gest átt á ævi okkar og þess get ég að þú sért enginn ótrisin [sic] gestur …

Athugasemd

Upphaf vantar

6 (97v)
Lausavísa
Titill í handriti

Ef þér lætur lukkan há

Athugasemd

Án titils

Efnisorð
7 (97v)
Lausavísa
Titill í handriti

Fyrir lánið málma meiður

Athugasemd

Tvítekin

Án titils

Efnisorð
8 (98r-159r)
Adónías saga
Titill í handriti

Saga af Addonio

Skrifaraklausa

Enduð í Sviðholti d. 18. febrúari af G[uðmundi] Illugasyni 1804 (159r)

Efnisorð
9 (160r-173v)
Skanderbeg saga fursta
Titill í handriti

Saga af Skanderbeg, þeim nafnfræga fursta í Epiro

Ábyrgð

Þýðandi : Jón Hjaltalín

10 (174r-207v)
Cyrus saga Persakonungs
Titill í handriti

Sagan af Cyró keisara

Athugasemd

Sagan er rangt inn bundin en rétt röð hefur verið merkt neðan á horn blaðsíðu Blaðsíðumerking er í samræmi við þá blýantsmerkingu sem fyrir er í handriti og stemmir því ekki við talningu blaða hér (skeikar tveimur blöðum)

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Vatnsmerki.

Vantar í handrit á milli blaða 80-81.

Blaðfjöldi
ii + 207 blöð (203 mm x 160 mm) Autt blað: 161v.
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Guðmundur Illugason

Skreytingar

Bókahnútar á blöðum: (173v) og (207v).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Framan við handrit liggur blað úr örk, prentað brot úr "Margvíslegt gaman og alvara", 1. hefti blaðsíður 101, 102, 107, 108. Útgefið af Magnúsi Stephensen, þar er meðal efnis brot úr kvæði eftir Jón Þorláksson. Einnig liggur framan við handrit tvinn, ritað á latínu og dönsku, blaðsíður 15-18. Á það eru skrifuð nöfnin Margrét Jónsdóttir og Guðmundur Sigurðsson, Kílabæ.

Blýantsmerking í handriti telur saurblað og stemmir því ekki við blaðtalningu hér, skeikar tveimur blöðum.

Band

Skinnband, rifið með pappaspjöldum (annað glatað).

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1803-1804.
Ferill

Eigandi handrits: Guðmundur Illugason á Skógtjörn (saurblað 1r, 1v og blað 97v). Nöfn í handriti: Jón Sigurðsson (saurblað 1r), [R.] Eyjólfsson, Sigurður Guðmundsson (saurblað 2v), B. Guðmundsson (saurblað 2v), B. Ólafsson (saurblað 2v), Pétur Oddsson (97v), Jón Ívarsson fær bókina að láni (97v).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 4. júní 2009 ; Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 5. janúar 1998.
Viðgerðarsaga

Athugað 1998.

viðgert

Myndir af handritinu
138 spóla negativ 35 mm ; án spólu.
Lýsigögn
×

Lýsigögn