„Laxdælinga saga“
„Ketill flatnefur hét maður …“
„… Þorkell var hið mesta nytmenni og manna fróðastur um marga hluti og lýkur þar nú sögunni.“
Sagan er hér án Bolla þáttar (Z-flokkur; í Y-flokki er Bolla þætti bætt við (sbr. Einar Ólafur Sveinsson 1934; lxxvi-lxxix).
Átján kver.
Band (175 mm x 128 mm x 33 mm) er frá nóvember 1975.
Spjöld eru klædd fíngerðum striga, grófari strigi er á hornum og kili. Saumað á móttök.
Handritið liggur í brúnni strigaklæddri öskju ásamt eldra bandi.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 398.
Árni Magnússon fékk handritið að láni hjá Bjarna Sigurðssyni á Heynesi en árið 1710 gaf Bjarni honum það, samkvæmt skilaboðum frá sr. Gísla, syni Bjarna (sjá seðil). Nafn Gísla á Grund í Skorradal kemur fyrir í handritinu ásamt ártalinu 1686.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1975. Eldra band liggur í öskju með handritinu.