Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 940 4to

Gunnars saga Keldugnúpsfífls ; Ísland, 1750-1799

Titilsíða

Saga af Gunnari Keldugnúpsfífli

Innihald

(2r-44v (bls. 3-88))
Gunnars saga Keldugnúpsfífls
Titill í handriti

Saga af Gunnari Keldugnúpsfífli

Upphaf

Þorgrímur hét maður …

Niðurlag

… Þóttu það allt vera miklir menn fyrir sér og lýkur þar þessari sögu.

Tungumál textans
íslenska

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
44 blöð (213 mm x 170 mm). Blað 1v er autt. Blað 44v er autt að mestu.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 1-88.

Kveraskipan

Sex kver.

  • Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16; 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24; 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32; 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40; 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-44; 2 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (140 mm x 105 mm).
  • Línufjöldi er ca 18-19.
  • Leturflötur er víða afmarkaður við innri og ytri spássíu og víðast einnig þá efri með línum sem dregnar eru með þurroddi.
  • Þar sem skil verða í efni er letur stærra og settara en í megintexta (sjá t.d. á blöðum 2v og 3v).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur.
  • Síðfljótaskrift.

Skreytingar

  • Á blaði 1r (titilsíðu) stendur með látlausum skrautstöfum Saga af Gunnari Keldugnúpsfífli.

  • Fyrirsögn á blaði 2r er með örlitlu pennaflúri í upphafsstöfum og stafir hennar greinast frá öðru letri að stærð og gerð; fyrsta lína í kafla er einnig yfirleitt með stærra og settara letri en letur í megintexta (sjá t.d. blað 2v og 8v).

Band

Pappakápa (203 null x 170 null x 7 null), gul með mynstri. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari helmings 18. aldar í  Katalog II , bls. 270.

Ferill

  • Kom í Det Arnamagnæanske Institut frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. júlí 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 8. júní 2009; lagfærði í janúar 2011.  ÞS skráði 8. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 27. ágúst 1909. Katalog II , bls. 270 (nr. 2072).

Viðgerðarsaga

Birgitte Dall athugaði í janúar 1984.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn