Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 508 4to

Víga-Glúms saga ; Danmörk, 1686-1688

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-52r)
Víga-Glúms saga
Titill í handriti

Hér hefur Víga-Glúms sögu

Vensl

Uppskrift eftir Möðruvallabók, AM 132 fol.

Upphaf

Ingjaldur hét maður, son Helga hins magra …

Niðurlag

… allra vígra manna hér á landi

Baktitill

og lýkur þar sögu Glúms.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 54 + i blöð (210-213 mm x 162-166 mm). Bl. 52v-54v eru auð.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki af Kålund.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165-170 mm x 115-120 mm.
  • Línufjöldi er 20-22.
  • Eyður fyrir upphafsstafi.
  • Vísuorð eru sér um línu.

Ástand

Göt eftir bókaorm.

Skrifarar og skrift

Bl. 1r-7v með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.

Bl. 8r-52r með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellíbrotaskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíuleiðréttingar Árna Magnússonar.

Band

Band frá árunum 1880-1920 (214 mm x 172 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.

Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti, með brotum úr Landsleigubálki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett frá hausti 1686 til hausts 1688 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í   Katalog I , bls. 669.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. janúar 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH lagfærði í nóvember 2010.

ÞS jók við samkvæmt reglum TEI P5 11. febrúar 2009 og síðar.

ÞS endurskráði 1. október 2001.

ÓB skráði í Sagnanet.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. júní 1887(sjá Katalog I 1889:668 (nr. 1277) .

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Om nogle af Ásgeir Jónssons håndskrifter
Umfang: s. 207-212
Höfundur: McKinnell, John
Titill: The reconstruction of Pseudo-Vatnshyrna,
Umfang: s. 304-338
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Um Vatnshyrnu,
Umfang: s. 279-303
Lýsigögn
×

Lýsigögn