Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 503 4to

Kjalnesinga saga ; Danmörk, 1686-1688

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-32v)
Kjalnesinga saga
Titill í handriti

Kjalnesinga saga

Vensl

Skrifað eftir Vatnshyrnu.

Upphaf

[H]elgi bjóla son Ketils flatnefs nam Kjalarnes …

Niðurlag

… er komin mikil ætt.

Baktitill

Lúkum vér þar Kjalnesinga sögu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 33 + i blöð (207 mm x 161 mm). Blað 33 er autt.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking við upphaf og endi 1 og 64.
  • Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki 1-32. Auða blaðið er ótölusett.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 145-160 mm x 115-120 mm.
  • Línufjöldi er 17-21.
  • Eyður fyrir upphafsstöfum kafla.

Skrifarar og skrift

Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellíbrotaskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Árni Magnússon bætti við titli.

Band

Band frá árunum 1880-1920 (219 mm x 168 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum.

Saurblöð tilheyra bandi.

Eldra band úr bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, en á því eru varðveitt brot úr Erfðatali.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett frá hausti 1686 til hausts 1688 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í  Katalog I , bls. 667, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var 1686-1707.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. september 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH lagfærði í nóvember 2010.

ÞS skráði skv. reglum TEI P5 6.-9. febrúar 2009 og síðar.

ÞS færði inn grunnupplýsingar 7. ágúst 2001.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 24. júní 1887(sjá Katalog I 1889:668 (nr. 1275) .

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Om nogle af Ásgeir Jónssons håndskrifter
Umfang: s. 207-212
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Leiðbeiningar Árna Magnússonar, Gripla
Umfang: 12
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Um Vatnshyrnu,
Umfang: s. 279-303
Lýsigögn
×

Lýsigögn