„Svarfdæla saga“
„Það er upphaf að þessi sögu …“
„… … bróður Karls unga.“
Nú lýkur hér Svarfdæla sögu með þvílíku efni.
Síðari tíma athugasemdir á blöðum sem varða eyður í texta forrits eru eftirfarandi : 1) Á blaði 17r hefur verið skilin eftir eyða fyrir nokkrar línur sem síðar hefur verið fyllt í: í því sem þetta var eftirskrifað stóð hér vantar ark í söguna. 2) Á blað 20v er skrifað: hér vantar kannski nokkuð. 3) Á blaði 55v er eyða og á spássíu er skrifað með blýanti: vantar lítið. 4) Sams konar athugasemdir með blýanti má sjá víðar, s.s. á blöðum 17v, 21r, 25r, 39r, 50r, 56r og 57r.
Upprunalegt blaðsíðutal 1-137. Blöð 138-144 eru ónúmeruð.
Níu kver.
Band (207 null x 170 null x 17 null) er frá 1700-1730.
Þrír seðlar eru festir á saurblað 1r, ritaðir með hendi Árna Magnússonar.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn eftir eintaki í kvartó sem tilheyrði Sigurði Ingimundarsyni og Árni Álfsson fékk að láni fyrir Árna Magnússon (sbr. seðlar). Handrit Sigurðar er nú glatað.
Handritið er tímasett til 1686-1687 og til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 659.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. september 1975.
Bundið í Kaupmannahöfn á árunum 1700-1730.