Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 154 fol.

Hrafns saga Sveinbjarnarsonar ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-31v (bls. 1-72))
Hrafns saga Sveinbjarnarsonar
Titill í handriti

Hér hefur sögu af Hrafni á Hrafnseyri.

1.1 (1r (bls. 1))
Formáli
Titill í handriti

Prologus.

Upphaf

Atburðir þeir er verða falla mönnum oft úr minni en sumir eru á annan veg sagðir en verið hafa …

Niðurlag

… að hver má gera það sem vill, gott eður illt.

Efnisorð
1.2 (1r-31v (bls. 1-72))
Hrafns saga Sveinbjarnarsonar
Upphaf

Sveinbjörn hét maður, son Bárðar svarta …

Niðurlag

… og Jóns og Herdísar móður Einars Bergssonar.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 31 blað + i blöð (317 mm x 204 mm). Neðsti hluti blaðs 31v er auður.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking: 1-72; síðari tíma blaðmerking með rauðum lit: 1-31.

Kveraskipan

Fjögur kver:

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-31, 3 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 250 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er ca 28-30.
  • Markað er fyrir innri og ytri spássíu með þurroddi .
  • Vísuorð eru sér um línu (sjá t.d. blöð: 16r-v, 29r og á fleiri stöðum).

Skrifarar og skrift

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Tölumerkingar á spássíum við vísur (alls 33) eru síðari tíma viðbót.

Band

Band (328 null x 207 null x 12 null).

Kjölur er klæddur bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka). Spjöld eru pappírsklædd.

Fylgigögn

  • Seðill (155 mm x 110 mm) með hendi Árna Magnússonar er festur á fremra saurblað. Frá sál. assessor Thormod Torvesens enke 1720. Úr númer 14.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 107, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.

Handritið var skrifað eftir skinnhandriti sem var í Konungsbókhlöðu (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r), en Kålund segir hafa glatast við bruna háskólabókasafnsins 1728 ( Katalog I , bls. 107). AM 155 fol. er skrifað eftir sama handriti.

Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blaði 6v-7r).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, blað 6v-7r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. ágúst 1885, Katalog I; bls. 107 (nr. 183), DKÞ færði inn grunnupplýsingar 19. mars 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 27. nóvember 2008; lagfærði í nóvember 2010

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Lýsigögn
×

Lýsigögn