„Hér byrjast saga af Gretti Ásmundarsyni.“
„Önundur hét maður; son Ófeigs bullufóts …“
„… það með hver giftumaður Þorsteinn drómundur var á sínum efstu dögum. “
Og endum vér nú sögu Grettis Ásmundarsonar hér.
Tólf kver.
Ein leiðrétting Þormóðs Torfasonar á spássíu blaðs 79r.
Band (317 null x 207 null x 28 null) frá 1911-1913.
Bókfell á kili, pappírsklæðning.
Band frá 1700-1730. Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (nú í Acc 7).
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) en til um 1700 í Katalog I , bls. 104, en virkt skriftartímabil skrifarans var ca 1686-1707.
Það er uppskrift eftir skinnhandriti sem virðist nú glatað (sbr. JS 409 4to).
Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885 í Katalog I; bls. 104 (nr. 179), Már Jónsson skráði hlut Árna Magnússonar 30. mars 2000, DKÞ skráði 28. september 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 26. nóvember 2008; yfirfór handritið í september 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Bundið af Otto Ehlert 1911-1913.
Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730. Það band er í Acc 7.