Håndskrift detailjer
AM 232 8vo
Der er ingen billeder tilgængelige for dette håndskrift.
Bréfabók Gissurar biskups Einarssonar; Island, 1540-1548
Indhold
Bréfabók Gissurar biskups Einarssonar
Þetta er frumrit. Sjá einnig AM 266 fol.
Einungis hlutar úr bókinni.
Fysisk Beskrivelse / Kodikologi
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með blýanti fyrir miðri neðri spássíu 1-126. Nokkur blöð eru einnig merkt efst í horni ytri spássíu en óreglulega.
- Vantar bæði framan og aftan af bókinni sem og innanúr.
- Skorið hefur verið af ytri spássíu fremstu blaðanna og texti skerst dálítið við það.
- Blöðin eru fúin og trosnuð. Víða hefur texti glatast af jöðrum af þeim sökum og sums staðar eru einnig göt og rifur í blöðunum. Gert hefur verið við blöðin með pappír og sums staðar límdur þunnur ofinn viðgerðardúkur yfir blöðin til þess að styrkja þau.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 92-124 mm x 82-90 mm.
- Línufjöldi er ca 16-28.
Upphafsstafir eru sums staðar örlítið pennaflúraðir, sjá á bl. 21v, 35v, 51r, 55v, 60v, 114v.
Smá pennaflúr efst á bl. 41r.
Litlir einfaldir bókahnútar á bl. 53r, 57v, 92r, 118v.
Band frá 1957 (142 mm x 112 mm x 30 mm). Pappaspjöld klædd ljósu skinni, saurblöð tilheyra bandi.
Handritið liggur í öskju.
- Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna og feril o.fl.
- Seðill 1 (142 mm x 92 mm): „fragment ur Brefabok herra Gissurar er hia mier i lane fra Sr Hannese halldorssyne i Reykhollte, og vill hann þad sidar aptur fa. þad sem hier vantar i verur fyllt ur þeirre in folio.“
- Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
- Seðill 2 (142 mm x 76 mm): „hann giore huor/ki rugl / ne mas / sem þar ad/rer er nu hafa fyrer / skemstu utanfarit “
Historie og herkomst
Handritið var skrifað á Íslandi á árunum 1540-1548.
Árni Magnússon fékk að láni hjá séra Hannesi Halldórssyni í Reykholti (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. ágúst 1977.
[Additional]
Viðgert og bundið af Birgitte Dall 1957. Eldra band (lélegt frá 1910) fylgdi ekki.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliografi
| Forfatter | Titel | Redaktør | Omfang |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||









