Håndskrift detailjer
AM 243 4to
Der er ingen billeder tilgængelige for dette håndskrift.
Bréfabók Odds biskups Einarssonar; Island, 1600-1650
Indhold
Bréfabók Odds biskups Einarssonar
Upplýsingar og fróðleikur frá biskupnum og fyrir hann, fyrst og fremst frá síðustu árum hans, einkum árinu 1630. Meðal efnis: afrit af bréfum, útdráttur úr bréfabók Gísla Jónssonar biskups, fróðleikur um prestaköll biskupsdæmisins, minnisgreinar um alþingi (1620 og 1622), frásögn af óhöppum í Skálholti við jarðskjálfta og eldgos árið 1630 og þar með upplýsingar um bækur og handrit sem biskupinn missti í eldi, afgjöld til biskupsstólsins o.fl.
Fysisk Beskrivelse / Kodikologi
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bláu bleki á neðri spássíu 1-45.
- Blöð 8-9 eru mjög illa farin. Einnig hefur rifnað eða morknað af efra horni blaða 32-45 og hefur texti skerst við það á sex öftustu blöðunum.
- Skorið hefur verið af handritinu við band og hefur texti á bl. 41-45 skerst við það.
- Tvídálka nema fyrstu sjö blöðin.
- Leturflötur er ca 175-180 mm x 140-155 mm.
- Línufjöldi er ca 26-30.
- Dálkar eru afmarkaðir með lóðréttu striki fyrir miðju blaði.
Með ýmsum höndum, fljótaskrift.
Band frá því í mars 1963 (213 mm x 170 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd brúnum mynstruðum pappír, safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju.
Fastur seðill (197 mm x 160 mm)fremst með hendi Árna Magnússonar: „Memoralia H. Odds biskups frá Monsieur Oddi Sigurðssyni“.
Historie og herkomst
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til fyrri helmings 17. aldar í Katalog I, bls. 510.
Árni Magnússon fékk handritið frá Oddi Sigurðssyni lögmanni (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1973.
[Additional]
- ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P522. desember 2009.
- GI færði inn grunnupplýsingar 26. september 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 21. desember 1886 (sjá Katalog I 1889:510 (nr. 969).
Viðgert og bundið í mars 1963. Eldra band fylgdi ekki með.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 20. mars 1972.
Bibliografi
| Forfatter | Titel | Redaktør | Omfang |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||









