Håndskrift detailjer
AM 111 fol.
Vis billederLandnámabók; Island, 1600-1677
Indhold
Landnámabók
„Upphaf Íslands byggðar og annarra byggða í kringum landið“
„Svo segir Beda prestur í aldarfarsbók þeirri …“
„… Ketill hinn fíflski. En landið var alheiðið 10 vetur.“
Þetta er Skarðsárbókargerð Landnámu.
Án viðauka.
Fysisk Beskrivelse / Kodikologi
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, 1-18.
Fjögur kver.
- Kver I: bl. 1-4, 2 tvinn.
- Kver II: bl. 5-8, 2 tvinn.
- Kver III: bl. 9-16, 4 tvinn.
- Kver IV: bl. 17-18, 1 tvinn.
Handritið hefur trosnað á jöðrum en gert hefur verið við það. Sumar spássíugreinar hafa skerst.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 285-292 mm x 165-170 mm.
- Línufjöldi er 38-45.
- Griporð.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Band frá því í mars 1974 (328 mm x 239 mm x 15 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt gömlu bandi.
>Gamalt pappaband frá 1772-1780 fylgir. Blár safnmarksmiði á kili.
- Fastur seðill (147 mm x 146 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar um uppruna handritsins. „Þesse Landnama bok er utteken ur blödum fra Sigurde Björnssyne Lögmanne, hvar ä voru Arna biskups Saga og fleire. er grei exemplar.“
- Athugasemd á miða sem límdur hefur verið innan á kápu um að héðan hafi verið tekinn seðill Árna Magnússonar og settur í AM 104 fol. þar sem hann á heima.
- Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Historie og herkomst
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1600-1677, en til 17. aldar í Katalog I, bls. 73. Það var e.t.v. áður hluti af stærri bók sem innihélt AM 217 a fol., AM 217 b fol., AM 217 c fol. og Eddukvæði (sbr. bl. 1r í AM 217 a fol.).
Uppskrift byggð á AM 104 fol. og eftirgerðum þess.
Árni Magnússon fékk handritið úr blöðum frá Sigurði Björnssyni lögmanni, en þau blöð eru nú flest í AM 217 a-c fol.. Sigurður erfði blöðin eftir tengdaföður sinn Sigurð Jónsson lögmann í Einarsnesi, sem átti bókina sem þau tilheyrðu (sbr. bl. 1a í AM 217 a fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. september 1974.
[Additional]
ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P58. desember 2008 - 2. mars 2009 og síðar. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 19. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. október 1885 (sjá Katalog I 1889:73 (nr. 130).
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1974.
Mattias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju með handritinu.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Ljósprent í Landnámabók. Íslenzk Handrit, Series in folio III (1974).
Bibliografi
| Forfatter | Titel | Redaktør | Omfang |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Landnámabók. Íslenzk Handrit, Series in folio III | |||
| Antiquités Russes | ed. C. C. Rafn | II: p. 231 | |
| Grönlands historiske Mindesmærker | ed. Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab | I: p. 51 | |
| Sture Hast | Pappershandskrifterna till Harðar saga, | 1960; XXIII | |
| Íslendinga sögur | p. 9-10 | ||
| Skarðsárbók: Landnámabók Björns Jónssonar á Skarðsá, Rit Handritastofnunar Íslands | ed. Jakob Benediktsson | 1958; I | |
| Íslendínga sögur: udgivne efter gamle Haandskrifter | ed. Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab | 1843-1889; I-IV | |
| Arngrimi Jonae Opera Latine conscripta | IV: p. 430, 432, 435, 441, 446-450, 456-459 | ||
| Landnámabók | |||
| Arkiv för nordisk filologi | iv: p. 287 | ||
| Grænland í miðaldaritum | p. 248 | ||
| Óláfs saga Tryggvasonar en mesta, | ed. Ólafur Halldórsson | 2000; III | |
| Árna saga biskups, | ed. Þorleifur Hauksson | 1972; II |